Sport

Hlynur fékk dóttur í af­mælis­gjöf

Sindri Sverrisson skrifar
Hlynur Andrésson er orðinn pabbi og spurning hvort dóttirin láti einnig til sín taka á hlaupabrautinni.
Hlynur Andrésson er orðinn pabbi og spurning hvort dóttirin láti einnig til sín taka á hlaupabrautinni. vísir / bjarni

Hlaupakappinn Hlynur Andrésson, fremsti maraþonhlaupari Íslandssögunnar, varð pabbi síðastliðinn þriðjudag.

Hlynur og unnusta hans, Valen San Vicente, eignuðust dóttur og er um að ræða þeirra fyrsta barn. Dóttirin fékk strax nafn og heitir Hugrún Vida Hlynsdóttir.

Segja má að Hlynur hafi fengið frumburðinn í afmælisgjöf því hann átti svo 33 ára afmæli í gær.

Hlynur, sem er uppalinn í Vestmannaeyjum, er eins og fyrr segir fremsti hlaupari sem Ísland hefur átt í lengri hlaupum. Hann er til að mynda handhafi Íslandsmetanna í 10.000 metra hlaupi, hálfu maraþoni og maraþoni, sem í 3.000 metra hindrunarhlaupi.

Á þessu ári hefur Hlynur náð tveimur áföngum sem hann var staðráðinn í að ná á sínum ferli. Það gerði hann með því að hlaupa 10 kílómetra götuhlaup á innan við 29 mínútum og svo með því að keppa á Evrópumeistaramótinu utanhúss í Birmingham í síðasta mánuði. Þar endaði Hlynur í 45. sæti í maraþoni á 2:22,07 tímum, eða átta og hálfri mínútu frá Íslandsmeti sínu, og ætlaði sér enn meira.

Markmið næsta árs segir Hlynur vera að öðlast þáttökurétt í maraþoni á sjálfu heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum sem fram fer í Peking í Kína. Til þess kveðst hann þó þurfa að bæta Íslandsmet sín í bæði hálfu og heilu maraþoni, samhliða því að sinna nú sínu nýja hlutverki sem pabbi Hugrúnar Vidu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×