Enski boltinn

Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði til­boðum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ismaila Sarr er á mála hjá Crystal Palace.
Ismaila Sarr er á mála hjá Crystal Palace. Getty/Liverpool

Liverpool hefur beint sjónum sínum að Ismaila Sarr, sóknarmanni Crystal Palace, eftir að Brighton hafnaði tveimur tilboðum félagsins í Yankuba Minteh.

Liverpool bauð fyrst 50 milljónir punda í Minteh og hækkaði síðan boðið í 60 milljónir, en Brighton hafnaði báðum tilboðunum. Nú er Sarr kominn inn í myndina hjá enska stórliðinu.

Sarr, sem er 28 ára Senegalmaður, leikur á hægri vængnum líkt og Minteh og hefur mikla reynslu úr ensku úrvalsdeildinni. Hann skoraði 21 mark fyrir Palace á síðustu leiktíð.

Samkvæmt heimildum BBC hefur Liverpool lagt fram tilboð í Sarr, en bæði Liverpool og Crystal Palace neita því að slíkt tilboð hafi borist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×