Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. ágúst 2026 17:30 Dominik Szoboszlai sá til þess að Liverpool fékk eitt stig gegn Newcastle United. getty/George Wood Dominik Szoboszlai tryggði Liverpool jafntefli gegn Newcastle United með marki úr vítaspyrnu þegar níu mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Lokatölur á St James' Park í dag, 2-2. Flest benti til þess að Newcastle United fengi sannkallaða draumabyrjun undir stjórn nýja knattspyrnustjórans, Matthias Jaissle. En í uppbótartíma braut Lewis Hall klaufalega á Victor Munoz innan vítateigs og Stuart Atwell benti á punktinn. Szoboszlai tók vítið, skoraði af miklu öryggi og jafnaði í 2-2. Jaissle er nýtekinn við Newcastle eftir að Eddie Howe hætti sem stjóri liðsins. Það var ekki bara Howe sem hvarf á braut í sumar heldur seldi Newcastle þrjá af sínum sterkustu leikmönnum: Sandro Tonali, Anthony Gordon og Bruno Guimaraes. Liverpool lék einnig sinn fyrsta keppnisleik undir stjórn nýs stjóra í dag, Andoni Iraola, sem tók við liðinu af Arne Slot. Newcastle byrjaði leikinn vel og komst yfir strax á 5. mínútu. Anthony Elanga skoraði þá eftir skyndisókn og sendingu frá William Osula. Elanga átti erfitt uppdráttar á síðasta tímabili og skoraði ekki í 32 deildarleikjum en byrjar þetta tímabil vel. Newcastle var með 1-0 forystu í hálfleik en á 55. mínútu jafnaði Cody Gakpo með skoti fyrir utan vítateig. Gleði Rauða hersins var þó skammvinn því Skjórarnir náðu forystunni á nýjan leik þremur mínútum seinna. Aftur skoraði Newcastle eftir skyndisókn. Joe Willock lagði þá boltann í fjærhornið eftir frábæran undirbúning Yoanes Wiisa. Mark Willocks virtist ætla að duga Newcastle til sigurs en Szoboszlai kom í veg fyrir það. Enski boltinn Liverpool FC Newcastle United
Uppgjörið: Stjarnan - Þór 4-2 | Stjarnan sýndi sparihliðarnar með nýja menn við stjórnvölinn Íslenski boltinn
Uppgjörið: Keflavík - ÍBV 1-0 | Keflvíkingar tengdu saman sigra í fyrsta skipti í sumar Íslenski boltinn
Uppgjörið: Stjarnan - Þór 4-2 | Stjarnan sýndi sparihliðarnar með nýja menn við stjórnvölinn Íslenski boltinn
Uppgjörið: Keflavík - ÍBV 1-0 | Keflvíkingar tengdu saman sigra í fyrsta skipti í sumar Íslenski boltinn