Nýliðarnir eyða meira en Manchester United Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. ágúst 2026 07:03 Bruno Fernandes og félagar Manchester United hafa ekki fengið mikinn liðstyrk í sumar. Getty/Marc Atkins Manchester United tryggði sér aftur sæti í Meistaradeildinni eftir flottan endasprett á síðasta tímabili og flestir bjuggust við þeim mjög virkum á félagsskiptamarkaðnum. Annað hefur komið á daginn.
United hefur hingað til eytt 83 milljónum punda til að fá Andrey Santos frá Chelsea og Youri Tielemans frá Aston Villa og stjórinn Michael Carrick kallaði eftir frekari liðsstyrk í nýju viðtali. Kannski ekkert skrýtið þar sem tveir nýliðar í ensku úrvalsdeildinni á komandi tímabili hafa eytt meiri pening í nýja leikmenn en United. Ipswich Town hefur eytt 109,4 milljónum punda og Coventry City, sem er að spila í úrvalsdeildinni í fyrsta sinn í 25 ár, hefur eytt 92,2 milljónum punda. Ipswich keypti meðal annars brasilíska framherjann Emerson frá Toulouse, kantmanninn Abdul Fatawu frá Leicester City og Florentino Luís frá Burnley, markvörðinn Kjell Scherpen frá Belgium Union Saint-Gilloise, Japanann Daizen Maeda frá Celtic, Issa Diop frá Fulham og Chuba Akpom frá Ajax. Sá dýrasti kostaði 24 milljónir en þetta eru margir leikmenn. Coventry City keypti meðal annars Caleb Yirenkyi frá Nordsjælland, markvörðinn Carl Rushworth frá Brighton & Hove Albion, miðvörðinn Aurèle Amenda frá Eintracht Frankfurt, Loum Tchaouna frá Burnley, Frank Onyeka frá Brentford og Gustavo Hamer frá Sheffield United. United hefur verið sterklega orðað við kaup á nýjum vinstri bakverði, þar á meðal Lewis Hall hjá Newcastle. Sögusagnir eru líka um að félagið sé einnig að íhuga að bæta við þriðja nýja miðjumanninum eftir brotthvarf Casemiro og hnémeiðsli Manuel Ugarte sem munu halda Úrúgvæanum frá keppni stærstan hluta tímabilsins. View this post on Instagram A post shared by DAZN Football (@daznfootball)
Enski boltinn Manchester United Ipswich Town FC Coventry City FC Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Fleiri fréttir Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Sjá meira