Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Samúel Karl Ólason skrifar 14. ágúst 2026 11:30 Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, rak sendiherra sinn í Bandaríkjunum fyrr í mánuðinum. Illa gengur að finna nýjan. AP/Alex Brandon Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, er í basli með að finna einhvern hæfan sem vill taka að sér starf sendiherra Úkraínu í Bandaríkjunum. Nokkrir sem forsetinn hefur leitað til hafa neitað því að fara til Washington DC en Selenskí rak nýverið fyrrverandi sendiherrann sem stendur frammi fyrir ásökunum um fjárdrátt.
Selenskí bauð Yuliu Svyrydenko, fyrrverandi forsætisráðherra, stöðuna fyrst en hún hafnaði henni. Það viðurkenndi Selenskí á blaðamannafundi í síðasta mánuði en hann sagðist vera að leita að manneskju sem hentaði í starfið og gæti staðið sig vel. Aðrir sem leitað hefur verið til hafa einnig hafnað en samkvæmt frétt Politico óttast margir að starfið yrði mjög erfitt vegna þess hve ríkisstjórn Donalds Trump væri óútreiknanleg. Það eru þó ekki margir sem koma til greina, þar sem sendiherra Úkraínu í Bandaríkjunum þyrfti að tengjast forseta Úkraínu nánum böndum og hafa greiðan aðgang að honum. Viðkomandi þyrfti einnig að njóta trausts forsetans. Einn fyrrverandi erindreki frá Úkraínu sagði það of mikla einföldun að segja að enginn vildi starfið. Vandamálið væri frekar að finna einhvern sem bæði hentar vel í starfið og vill það. Hafa dregið verulega úr stuðningi en enn mikilvægir Þrátt fyrir að ríkisstjórn Trumps hafi dregið nánast alfarið úr beinum stuðningi við Úkraínu eru samskipti ríkjanna gífurlega mikilvæg fyrir Úkraínumenn. Kiel Institut birti í vikunni nýja skýrslu um stuðning við Úkraínu þar sem glögglega má sjá hve mikið Trump hefur dregið úr stuðningi við Úkraínu. Mikið af þeim vopnum sem Úkraínumenn fá frá bakhjörlum sínum í Evrópu eru keypt frá Bandaríkjunum og Úkraínumenn leggja nú mikið kapp á það að fá heimild til að framleiða flugskeyti í Patriot-loftvarnarkerfið frá Bandaríkjunum. Slík flugskeyti eru Úkraínumönnum gífurlega mikilvæg þar sem þau eru einu varnir þeirra gegn rússneskum skotflaugum. Selenskí sagði nýverið að á þessu ári hefðu Úkraínumenn fengið einungis þriðjung þeirra flugskeyta sem þeir fengu á sama tíma í fyrra. Varnarmálaráðuneyti Rússlands birti í morgun mynd af rússneskum sjálfsprengidrónum með texta sem gaf til kynna að þeir yrðu jafn margir og snjókorn í Úkraínu í vetur. Þá fylgdi myndinni texti um að Úkraínumenn myndu frjósa í vetur. Úkraínumenn svöruðu færslunni með mynd af brennandi olíuvinnslu í Rússlandi og sögðu að þeir myndu hlýja sig við ylinn frá henni og öðrum slíkum. Vandinn er samt raunverulegur fyrir Úkraínumenn og hafa ráðamenn þar varað íbúa við því að veturinn gæti orðið sá erfiðasti hingað til.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Bandaríkin Donald Trump Tengdar fréttir Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Pólskir löggæslumenn handtóku á dögunum rússneskan mann sem sagður er hafa verið ráðinn af yfirvöldum í Rússlandi til að myrða bandarískan ríkisborgara. Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, segir þetta fyrsta málið af þessu tagi, þar sem Rússar hafi reynt að myrða bandarískan ríkisborgara í NATO-ríki. 13. ágúst 2026 23:47 Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Bandarískir hermenn í Þýskalandi héldu í vor æfingu sem úkraínsk drónasveit tók einnig þátt í. Æfingin fór ekki vel fyrir Bandaríkjamenn en Úkraínumennirnir notuðu dróna til að sigra þá, með nokkuð afgerandi hætti. 13. ágúst 2026 22:02 Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Tveir eru sagðir látnir og tólf særðir eftir árás Úkraínumanna á flotastöð Rússa við Svartahaf í nótt. Forseti Úkraínu segirr dróna og flugskeyti hafa hæft loftvarnarkerfi Rússa, bryggjur og aðra hafnarinnviði. 12. ágúst 2026 13:36 Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Rússar halda enn í það minnsta sextán þúsund úkraínskum borgurum föngnum og er mörgum þeirra haldið við aðstæður sem fara gegn alþjóðasamþykktum. Pyntingar og kynferðislegt ofbeldi er sagt kerfisbundið, bæði gegn úkraínskum borgurum og stríðsföngum. 11. ágúst 2026 22:01 Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Óveður gengur yfir landið Innlent Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Erlent Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Innlent Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Fleiri fréttir „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sjá meira
Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Pólskir löggæslumenn handtóku á dögunum rússneskan mann sem sagður er hafa verið ráðinn af yfirvöldum í Rússlandi til að myrða bandarískan ríkisborgara. Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, segir þetta fyrsta málið af þessu tagi, þar sem Rússar hafi reynt að myrða bandarískan ríkisborgara í NATO-ríki. 13. ágúst 2026 23:47
Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Bandarískir hermenn í Þýskalandi héldu í vor æfingu sem úkraínsk drónasveit tók einnig þátt í. Æfingin fór ekki vel fyrir Bandaríkjamenn en Úkraínumennirnir notuðu dróna til að sigra þá, með nokkuð afgerandi hætti. 13. ágúst 2026 22:02
Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Tveir eru sagðir látnir og tólf særðir eftir árás Úkraínumanna á flotastöð Rússa við Svartahaf í nótt. Forseti Úkraínu segirr dróna og flugskeyti hafa hæft loftvarnarkerfi Rússa, bryggjur og aðra hafnarinnviði. 12. ágúst 2026 13:36
Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Rússar halda enn í það minnsta sextán þúsund úkraínskum borgurum föngnum og er mörgum þeirra haldið við aðstæður sem fara gegn alþjóðasamþykktum. Pyntingar og kynferðislegt ofbeldi er sagt kerfisbundið, bæði gegn úkraínskum borgurum og stríðsföngum. 11. ágúst 2026 22:01