Maður dagsins á HM: Stjörnustrákurinn vildi spila meira Ágúst Orri Arnarson skrifar 19. júlí 2026 10:34 Bukayo Saka hefði viljað vera í stærra hlutverki þegar mest á reyndi á HM. Eddie Keogh - The FA/The FA via Getty Images Bukayo Saka skoraði þrennu í 6-4 sigri Englands gegn Frakklandi í bronsleik HM í gærkvöld en „hefði elskað“ að spila meira á mótinu og segist hafa verið í formi til þess.
Saka var í byrjunarliði Englands í gærkvöld en landsliðsþjálfarinn Tomas Tuchel ákvað að nýta ekki hans krafta í 2-1 tapi í undanúrslitaleiknum gegn Argentínu. Saka hafði verið að glíma við meiðsli og kom inn af varamannabekknum í fyrstu leikjum riðlakeppninnar, fyrir Noni Madueke, liðsfélaga sinn hjá Arsenal. Morgan Rogers byrjaði svo hægra megin gegn Argentínu. Saka spilaði alls í sjö af átta leikjum á mótinu, þar af þrjá í byrjunarliðinu, en spilaði ekkert þegar England féll úr keppni um heimsmeistaratitilinn með tapinu gegn Argentínu. „Ég hefði elskað að spila stærri þátt en það er of seint að tala um það núna,“ sagði Saka við BBC eftir þrennu í bronsleiknum gegn Frakklandi í gær. „Ég reyni að láta verkin tala á vellinum. Ég er heill… Við náðum nokkrum flottum úrslitum á mótinu en gerðum ekki nóg gegn Argentínu, það er mjög sárt. Við þurfum að halda haus og halda áfram,“ bætti Saka við. „Stjörnustrákurinn (e. Starboy)“ Saka, yngsti leikmaður í sögu Arsenal til að skora 10+ mörk og gefa 10+ stoðsendingar á einu tímabili, vann loksins Englandsmeistaratitilinn í vor. Hann náði hins vegar ekki að eigna sér stöðuna á hægri kantinum hjá enska landsliðinu, eftir að hafa glímt við meiðsli á tímabilinu og aðeins hafa skorað 7 mörk og gefið 5 stoðsendingar í 31 leik. Tomas Tuchel ákvað að nýta frekar krafta Morgan Rogers í mikilvægasta leik mótsins. „Hann gerði allt rétt,“ sagði Tuchel um Saka eftir leikinn í gær. „Ég hafði bara á tilfinningunni að í undanúrslitaleiknum myndi Morgan Rogers framkalla eitthvað frábært, það var málið. Leikurinn var mjög krefjandi og við neyddumst til að gera skiptingar vegna álags og flæði leiksins. Bukayo hefur sýnt að hann er lykilmaður í okkar liði, um það er enginn vafi. Ég tók ekki einu sinni eftir því að hann hefði skorað þrennu, ég missti tölu á markaskorurunum,“ bætti Tuchel við eftir bronsleikinn í gær.
HM 2026 í fótbolta Enski boltinn Arsenal FC Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram Sjá meira