„Snerist um að færa þjóðinni besta árangurinn á HM í sextíu ár“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. júlí 2026 09:00 Bukayo Saka fékk að sjálfsögðu að eiga boltann eftir leikinn gegn Frakklandi eins og venjan er með þriggja marka menn. getty/Eddie Keogh Bukayo Saka varð fjórði enski leikmaðurinn til að skora þrennu á HM þegar hann skoraði þrjú af sex mörkum Englands í 4-6 sigri á Frakklandi í ótrúlegum bronsleik í Miami í gær.
Saka kom ekkert við sögu í leiknum gegn Argentínu í undanúrslitunum en fékk tækifæri í byrjunarliðinu gegn Frakklandi í gær og nýtti það vel. Hann skoraði tvö mörk undir lok fyrri hálfleiks og svo þriðja mark sitt úr vítaspyrnu þegar þrjár mínútur voru til leiksloka. „Þetta var klikkaður, klikkaður leikur. Bæði lið voru vonsvikin með að vera ekki í úrslitaleiknum en þetta snerist um að klára mótið vel og færa þjóðinni besta árangurinn á HM í sextíu ár svo við erum sáttir með úrslitin,“ sagði Saka eftir leikinn. „Þetta féll fyrir okkur í fyrri hálfleik en þeir unnu þann seinni. En við skoruðum tveimur mörkum meira til að vinna leikinn,“ bætti Saka við en England var 0-4 yfir í hálfleik. Hvatti hann til að taka vítið Jude Bellingham fiskaði vítið sem Saka skoraði þriðja mark sitt úr. Hann segir að Bellingham hafi ekki farið fram á að taka vítið. „Nei, Jude var aldrei að fara að taka vítið. Hann var sá fyrsti sem sagði við mig að ná þrennunni. Enginn þeirra kom og truflaði mig. Ég var alltaf að fara að taka vítið,“ sagði Saka sem neitaði því ekki að hann hefði viljað fá fleiri tækifæri á HM en hann gerði. „Auðvitað hefði ég viljað spila meira en það er of seint að tala um það. Ég reyni að láta verkin tala og þetta er búið og gert. Höldum áfram.“ Sárt tap fyrir Argentínu Þrátt fyrir að vera sáttur með úrslit leiksins í gær vildi Saka fara enn lengra á HM. „Við náðum frábærum úrslitum en okkur vantaði herslumuninn gegn Argentínu. Það særði okkur alla eins og eflaust alla stuðningsmennina heima fyrir en við verðum að bera höfuðið hátt og einbeita okkur að næsta verkefni,“ sagði Saka. England hafði tvisvar áður keppt um 3. sætið á HM en tapað í bæði skiptin (1990 og 2018). Árangurinn á HM í ár er sá besti hjá enska liðinu síðan það varð heimsmeistari á heimavelli 1966.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Leik lokið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Sjá meira