Stjarnan - Breiða­blik 4-4 | Átta marka tryllir í Garða­bænum

Árni Jóhannsson skrifar
Aron Bjarnason skrúfar boltann í fjærhornið til að koma Blikum í 2-0.
Aron Bjarnason skrúfar boltann í fjærhornið til að koma Blikum í 2-0. Vísir / Diego

Stjarnan og Breiðablik gerðu átta marka jafntefli í ótrúlegum fótboltaleik í Garðabænum í kvöld. Leikar enduðu 4-4 þar sem Emil Atlason gerði þrennu meðal annars.

Ég hefði alveg skilið þá aðdáendur Stjörnunnar sem hefðu labbað út eftir um sex mínútna leik í kvöld. Þá voru Breiðablik komnir tveimur mörkum yfir og það stóð ekki steinn yfir steini hjá heimamönnum. 

Viktor Karl Einarsson opnaði markareikninginn á fimmtu mínútu þegar hann tók við boltanum í teignum eftir skot Ívars Arnars Árnasonar í slána. Viktor þurfti bara að hitta rammann enda Árni í markinu liggjandi eftir skutluna út af sláarskotinu. 

Minna en mínútu seinna var Aron Bjarnason á ferðinni. Hann tók við boltanum eftir sendingu frá Kristófer Inga Kristinssyni við vítateigslínuna og fékk pláss til að stilla skotfótinn og skrúfa boltann yfir Árna í markinu og í fjær samskeytin. Glæsilegt mark og allt í blóma hjá Blikum.

Stjörnumenn náðu aðeins og bíta frá sér en Blikar opnuðu plássin í og við vítateig heimamanna auðveldlega og á 28. mínútu kom þriðja mark Breiðabliks. Það hélt blaðamaður að væri náðarhöggið.

Ágúst Orri Þorsteinsson labbaði inn í vítateiginn og renndi boltanum á Aron Bjarnason sem gat ekki annað en rennt boltanum í netið. Sem hann og gerði.

Það var hinsvega stórkostlega illa lesið af blaðamanni að lýsa því yfir í textalýsingunni að leik væri lokið. Það var sannarlega ekki raunin. Stjarnan minnkaði muninn tveimur mínútum seinna og var þar Emil Atlason á ferðinni. Emil skaut í Örvar Eggertsson, fékk boltann aftur og kom boltanum í netið. Við það hresstust áhorfendur og leikmenn Sjtörnunnar.

Stjarnan tók yfir leikinn og uppskar annað mark sitt þegar um sjö mínútur voru eftir af fyrri hálfleik. Aftur var Emil Atlason á ferðinni. Nú gaf Benedikt Warén sendingu á fjærstöngina og þar lúrði Emil og stangaði boltann í netið. Mikið fjör hlaupið í leikinn og hann alls ekki búinn. 

Staðan var 2-3 Breiðablik í vil sem voru líklega pirraðara liðið eftir 45 mínúturnar. Stjarnan mætti svo af fítonskrafti út í seinni hálfleikinn en náði ekki að grípa gæsina.

Kristófer Ingi Kristinsson kom Blikum aftur í tveggja marka forskot þegar níu mínútur voru búnar af seinni hálfleik. Viktor Örn rak Kristófer í að hlaupa inn fyrir línuna sem hann og gerði. Árni markmaður var kominn dálítið langt út úr markinu og Kristófer nýtti skoppið á boltanum til að lyfta honum yfir Árna og í markið.

Þetta róaði taugar leikmanna Breiðabliks líkega en mögulega var það þeim að falli að taugarnar væru ekki þandar.

Það tók Stjörnumenn 20 mínútur að minnka muninn. Uppskriftin að markinu var alveg eins og að öðru markinu en nú var það Haukur Brink, sem var nýkominn inn á, sem gaf fyrirgjöf á fjær þar sem Emil Atlason var staddur. Emil tók boltann á lofti og hamraði hann í netið. Það trylltist allt og mikil gleði hjá heimamönnum. 

Gleðin varð svo enn meiri þegar 10 mínútur voru eftir af leiknum. Þá jafnaði Stjarnan metin. Guðmundur Baldvin Nökkvason fékk boltann í D boganum, dansaði með hann örlítið, sendi svo á Birni Snæ Ingason sem skaut boltanum á nærstöng. Anton Ari, markvörður gestanna, hefur örugglega haldið að Birnir myndi snúa boltann í fjær því hann hreyfði hvorki legg né lið. Netmöskvarnir voru þandir og allt ærðist í stúkunni.

Lokamínútur leiksins voru svo æsispennandi. Bæði lið fengu sannarlega tækifæri til að stela sigrinum en allt kom fyrir ekki og leik lauk með átta marka jafntefli, 4-4. Breiðablik hljóta að blóta alla leið heim í Smárann en Stjörnumenn geta fagnað stigi og verið ánægðir með karakterinn sem þeir sýndu.

Atvik leiksins

Átta mörk litu dagsins ljós. Mörg glæsileg en það er jöfnunarmarkið sem er atvik leiksins. Birnir Snær Ingason skoraði það en hann hefur átt undir högg að sækja og hlýtur að fá byr undir báða vængi.

Stjörnur og skúrkar

Emil Atlason er óumdeilanlega maður leiksins. Hann skoraði þrjú mörk og varnarmenn Breiðabliks áttu fullt í fangi með hann.

Ég ætla að lýsa því yfir að varnir og markmenn liðanna eru skúrkarnir í kvöld. Fjögur mörk báðu megin og ég hugsa að enginn sem spilar aftarlega á vellinum fari sáttur á koddann í kvöld.

Umgjörð og stemmning

Það var fróðlegt að sjá stemmninguna breytast hjá rúmlega 500 áhorfendum leiksins í kvöld. Það var algjör dauðaþögn hjá heimamönnum í upphafi leiks en eftir því sem leið á jókst gleðin. Eins var gleðin við völd hjá Breiðablik en sú gleði breyttist í streitu samhliða aukinni gleði Stjörnumanna.

Dómarinn

Ívar Orri Kristjánsson hélt um flautuna og afgreiddi verkefnið vel í kvöld. Ekkert út á hann að setja.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira