Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. júní 2026 07:46 Ruben Dias vildi slökkva á allri umræðu um framhjáhald nú þegar ástarsambandi hans er lokið. Getty/Visionhaus Ruben Dias, stórstjarna ensku bikarmeistaranna í Manchester City, taldi sig þurfa að koma fram og segja sannleikann um sambandsslit sín og kærustu sinnar.
Hinn 29 ára gamli Ruben Dias og hin 31 árs gamla Maya Jama eru hætt saman. Nú rýfur Dias þögnina. „Ég hélt ekki framhjá,“ skrifar stjarna Manchester City á samfélagsmiðla sína. Ein af ástæðunum fyrir því að stjörnuparið hætti saman var, samkvæmt orðrómi, að Ruben Dias hefði haldið framhjá Mayu Jama. Ruben Dias ‘draws a line’ at cheating accusations amid Maya Jama break-up speculation https://t.co/zLMMFXgzKr pic.twitter.com/AL9SZiPr9H— The Independent (@Independent) May 30, 2026 „Þegar 85 ára gamall afi minn spyr mig hvort ég hafi haldið framhjá kærustunni minni af því að hann hefur séð það ítrekað í fréttum, þá finnst mér komið að þeim mörkum sem eru ásættanleg og ekki,“ skrifar Dias og heldur áfram: „Lygi sem er endurtekin nógu oft getur farið að hljóma eins og sannleikur og af þeirri ástæðu segi ég ykkur að ég hélt ekki framhjá og hafði aldrei í hyggju eða freistingu til þess. Maya á skilið alla virðingu í heiminum,“ skrifar Dias. Maya Jama er þáttastjórnandi raunveruleikaþáttanna Love Island og þekkt sjónvarpsstjarna í Englandi. Stjörnuparið hittist á MTV-hátíð í Manchester í nóvember 2024 og var saman í átján mánuði áður en sambandinu lauk fyrir um mánuði síðan. Parið hefur eytt öllum myndum af hvort öðru á samfélagsmiðlum. Dias skrifar að ástæðurnar fyrir sambandsslitunum séu einkamál. „Ég hef alltaf kosið að þegja um þessi mál þar sem einkalíf mitt kemur aðeins mér við. En mér finnst líka rangt að ljúga að fólki og draga upp falska mynd af einhverjum bara fyrir smellibeitur,“ skrifar Dias. Ruben Dias tekur þátt í sinni þriðju heimsmeistarakeppni í fótbolta fyrir Portúgal í sumar. Miðvörðurinn hefur unnið fjóra enska úrvalsdeildartitla og einn Meistaradeildartitil undir stjórn Pep Guardiola hjá Manchester City.
Enski boltinn Manchester City Mest lesið Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn „Það er erfitt að eiga við okkur“ Íslenski boltinn Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Íslenski boltinn „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Sakar Infantino um fjárkúgun Fótbolti Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Handbolti Fleiri fréttir United ekki lengi þjálfaralaust Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Arsenal nálgast kaup á Guimaraes Metfjöldi nýrra þjálfara Henderson genginn í raðir Chelsea Chelsea kaupir strákinn sem Bellingham sló og skoraði á móti Íslandi Sjáðu mörkin og kennslustundina sem Liverpool fékk frá Leeds í seinni Newcastle hafnar tilboði Arsenal í Guimaraes Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Þjálfari Man Utd hættir mánuði fyrir mót Finnst Maresca vera fullkominn fyrir City Hló er hann var spurður út í Vinícius Júnior „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Chelsea kaupir Lacroix fyrir rúmlega fimmtíu milljónir punda Jaissle líklegastur til að taka við af Howe Howe hættur hjá Newcastle Rio Ngumoah tryggði Liverpool sigur Welbeck verður sá fyrsti í fjögur ár Enska deildin mun taka hart á platmeiðslum markvarða Dyche segir að Heiðar hafi verið sá lélegasti á æfingum Liverpool undirbýr viðræður við PSG um Barcola Sjá meira