Oddvitaáskorunin: Liverpool ekki vinsælasta liðið innan flokksins Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 15. maí 2026 15:01 Ómetanlegt að geta fylgt börnunum í nýjar áskoranir Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum.
Bragi Bjarnarson er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Sveitarfélaginu Árborg. Ég heiti Bragi Bjarnason og er 45 árs, eiginmaður og faðir þriggja barna og verið svo lánsamur að fá að ala þau upp í Sveitarfélaginu Árborg. Ég er menntaður íþróttafræðingur, með MBA gráðu frá Háskóla Íslands og hef starfað sem stjórnandi hjá Sveitarfélaginu Árborg í 18 ár, nú sem bæjarstjóri. Ég leiði D-listann í Árborg sem er skipaður öflugum hópi einstaklinga sem vilja leggja sitt af mörkum fyrir samfélagið. Framtíðarsýn okkar er skýr. Við ætlum áfram að vinna lausnamiðað og starfa af heiðarleika að málefnum sveitarfélagsins og tryggja að reksturinn standi undir þeirri þjónustu sem því ber að veita. Þannig getum við byggt upp sterka innviði í fjölskylduvænu samfélagi þar sem íbúar á öllum aldri geta sótt þjónustu og fengið störf við hæfi. Eitt af helstu áherslumálum D-listans í Árborg er ábyrg fjármálastjórn. Með fyrirsjáanleika í fjármálum getur sveitarfélagið skapað forsendur til lægri gjalda á íbúa og fyrirtæki, veitt góða og fjölbreytta þjónustu í takti við þarfir íbúa sem miða að því að auka lífsgæði í Árborg okkar allra, þar sem þú skiptir máli. Hvar á Íslandi myndir þú búa ef þú mættir ekki búa í þínu sveitarfélagi? „Líklega Akureyri“ Hver er uppáhalds bókin þín? „Allar bækurnar hans Stefáns Mána um Hörð Grímsson“ Ef þú þyrftir að skera niður í rekstri sveitarfélagsins þíns um hundrað milljónir, hvar myndir þú skera niður? „Hef því miður þurft að fara í gegnum þetta verkefni og það þarf að velta við öllum steinum.“ Fjölskyldan í Berghólum á Selfossi Ef þú fengir hundrað milljónir til að efla tiltekin verkefni eða svið í sveitarfélaginu, hver væru þau? „Eftir mikla endurskipulagningu undanfarin ár myndi þessi upphæð vera sett í mikilvæg viðhaldsverkefni sem bæta starfsaðstæður nemenda og starfsmanna í sveitarfélaginu. Það væri reyndar líka gaman að geta keypt nýjar rennibrautir í sundlaugarnar“ Hver væri titill ævisögu þinnar? „Jákvæðni að leiðarljósi“ Hvort er betra að hringja eða senda skilaboð? „Fer eftir því í hvern ég er að reyna að ná“ Hvaða skoðun þín er óvinsæl innan eigin flokks? „Líklega með hvaða liði ég held í enska boltanum“ Feðgar á heimaslóðum besta félagsliðs heims Ef þú gætir orðið sérfræðingur í einhverju samstundis, hvað væri það? „Golfi“ Hvaða ákvörðun myndir þú taka á fyrsta ári í sveitarstjórn sem yrði umdeild? „Vonandi enga en myndi allavega þá ákvörðun vel“ Hvað var það síðasta sem þú notaðir gervigreindina í? „Draga saman skýrslu í minnispunkta“ Hvaða flokki gætir þú hugsað þér að mynda meirihluta með? Hvaða flokki gætir þú alls ekki unnið með? „Öllum þeim sem vilja vinna að málefnum Árborgar að heillindum“ Nefndu mistök sem þú hefur gert á ævi þinni. „Þau eru fjölmörg en hef alltaf horft á mistök sem þátt í að verða betri manneskja og í því sem ég tek mér fyrir hendur.“ Hvað er betra í þínu sveitarfélagi en öðrum? „Erum með einn besta miðbæ landsins á Selfossi, frábært skóla- og frístundastarf, öflugt félag eldri borgara og njótum þeirrar sérstöðu að geta boðið upp á fjölbreytta búsetukosti með þrjá þéttbýliskjarna og dreifbýli“ Mynd úr ævintýraferð í Frakklandi Hvað borðar þú í morgunmat? „Soðið egg og hafragraut, síðan er það fyrsti kaffibollinn“ Hvað fer í taugarnar á þér varðandi stjórnun sveitarfélagsins í dag? „Ég get verið óþolinmóður gagnvart verkefnum sem mig langar að vinnist hraðar“ Hvað finnst þér raunhæft að afreka á næstu fjórum árum? „D-listinn í Árborg getur unnið að lækkun álaga og skatta, uppbygging innviða haldi áfram, atvinnutækifærum fjölgi og sveitarfélögin ásamt ríkinu komi sér saman um lausn á leikskólamálum samfélagsins (bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla)“ Hvert er uppáhalds lagið þitt? „Sweet Child O´Mine – GNR“ Hvaða mistök hafa verið gerð í þínu sveitarfélagi undanfarin ár? „Það voru gerð fjárhagsleg mistök á árunum 2018-2022 með gríðarlegri skuldasöfnun og hallarekstri. D-listinn í samvinnu við íbúa og starfsmenn hefur náð tökum á þeim vanda frá 2022-2026 og horfum björtum augum til næstu ára.“ Hvert er uppáhalds gælunafnið sem þú hefur fengið og af hverju? „Hef nú ekki fengið neitt gælunafn sem hefur fests við mig en stunduð verið kallaður Bralli eða íþróttaálfurinn þar sem íþróttir og hreyfing hafa átt stóran þátt í mínu lífi.“ Hvaða loforð úr kosningabaráttunni munt þú standa við? „Markmiðið er að standa við öll kosningaloforðin og hvet íbúa Árborgar til að geyma stefnuskrá D-listans til að við getum farið yfir hana aftur árið 2030.“
Oddvitaáskorunin Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Árborg Mest lesið Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit Lífið Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“ Lífið Perez Hilton fluttur á spítala eftir sjálfsskaða í beinu streymi Lífið Sonur Mari og Njarðar fæddur Lífið Hvað er í gangi á Svalbarða? Lífið Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Lífið Líkamlega lemstruð og fötin í rúst en vel þess virði Lífið Sankað að sér milljónum fylgjenda á tíu ára ferli Lífið Hefur „ekki hugmynd um hvað er í gangi“ en kemur Grande samt til varnar Lífið Good Morning America í beinni frá Bláa lóninu á almyrkva Lífið Fleiri fréttir Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“ Sankað að sér milljónum fylgjenda á tíu ára ferli Hvað er í gangi á Svalbarða? Hefur „ekki hugmynd um hvað er í gangi“ en kemur Grande samt til varnar Good Morning America í beinni frá Bláa lóninu á almyrkva Perez Hilton fluttur á spítala eftir sjálfsskaða í beinu streymi Sonur Mari og Njarðar fæddur Líkamlega lemstruð og fötin í rúst en vel þess virði Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit „Ég vil vera bestur í öllu“ Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Opnar sig um þunglyndi og depurð Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Fyrsta platan í tuttugu ár Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Sjá meira