Ævilöng bönn og stúku lokað: „Þurfum öll að burðast með þessa skömm“ Sindri Sverrisson skrifar 10. maí 2026 22:00 Óeirðirnar á borgarslagnum í Prag koma til með að hafa miklar afleiðingar. Slavia Prague Tékkneski fótboltarisinn Slavia Prag á yfir höfði sér þunga refsingu en forráðamenn félagsins hafa einnig þegar gripið sjálfir til ráðstafana, eftir ofbeldisfulla innrás stuðningsmanna á völlinn í leik gegn Sparta Prag í borgarslagnum í gær.
Slavia var 3-2 yfir í leiknum og komið vel fram í uppbótartíma þegar óeirðirnar brutust út. Stuðningsmenn liðsins misstu sig of snemma en sigur í leiknum hefði tryggt Slavia meistaratitilinn. Þeir réðust meðal annars á þrjá leikmenn Sparta, markvörðinn Jakub Surovčík, varnarmanninn Jakub Martinec og sóknarmanninn Matyáš Vojta. Núna er búist við því að Slavia verði dæmt 3-0 tap og að forskotið á Sparta minnki úr átta í fimm stig þegar enn verða þrjár umferðir eftir. Samkvæmt AP fréttastofunni má búast við niðurstöðu aganefndar á þriðjudag og er talið að auk þess að verða dæmt tap muni Slavia fá háa sekt og stuðningsmannabann. Chaos in Prague as a premature pitch invasion leads to the derby between Slavia and Sparta being abandoned 😳The home side, Slavia, had been 3-2 up in stoppage time and were seconds away from clinching the Czech title 🇨🇿pic.twitter.com/mJ3m7JA9bi— Men in Blazers (@MenInBlazers) May 9, 2026 Sparta Prag gæti einnig fengið refsingu vegna sinna stuðningsmanna sem kveiktu í blysum og ollu skemmdarverkum á leikvanginum. Jaroslav Tvrdík, framkvæmdastjóri Slavia, segir hegðun stuðningsmanna félagsins hafa verið „ömurlega og óásættanlega“. Hann segist raunar neita að kalla þá sem réðust inn á völlinn stuðningsmenn. „Þetta er ekki fótbolti. Þetta er ekki Slavia. Við þurfum öll að burðast með þessa skömm,“ skrifaði Tvdrík í afdráttarlausri færslu á Twitter. Hodnotami Slavie nejsou nenávist a násilí. Přijímáme odpovědnost a vyvodíme důsledky.To, co se odehrálo v závěru včerejšího derby ve Fortuna Areně, je nejtěžší chvíle v novodobé historii klubu.Skupina lidí – odmítám je nazývat fanoušky – vběhla na hrací plochu, napadla hráče…— Jaroslav Tvrdik (@JaroslavTvrdik) May 10, 2026 Félagið hefur þegar ákveðið að loka norðurstúkunni á leikvangi sínum, þar sem mestu fótboltabullur félagsins halda sig jafnan, um óákveðinn tíma. Tvdrík segir að til greina komi að hafa hana lokaða allt næsta keppnistímabil. Þá verða þeir sem réðust á leikmenn Sparta settir í ævilangt bann, segir Tvdrík. Félagið ætlar sömuleiðis að krefjast skaðabóta frá sökudólgunum vegna skemmda og þeirra sekta sem Slavia kemur til með að þurfa að greiða. Þá voru leikmennirnir Tomás Chorý og David Doudera, sem báðir fengu rautt spjald, teknir út úr aðalliði félagsins.
Fótbolti Mest lesið Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira