Sagður þjást en vill enga vorkunn Sindri Sverrisson skrifar 6. maí 2026 11:01 Bukayo Saka var vel fagnað í gærkvöld. Getty Bukayo Saka skoraði sigurmark Arsenal gegn Atlético Madrid í gærkvöld og kom liðinu í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Arsenal-goðsögnin Thierry Henry segir hann harka af sér meiðsli til að spila en sjálfur vill Saka enga vorkunn.
Saka var frá keppni í rúman mánð eftir tapið gegn Manchester City í úrslitaleik deildabikarsins í mars en hefur smám saman verið að koma aftur í lið Arsenal á afar mikilvægum tímapunkti. Hann skoraði og lagði upp á 45 mínútum í 3-0 sigrinum gegn Fulham um helgina og skoraði svo einnig á þeim 58 mínútum sem hann spilaði í gær gegn Atlético. Frammistaða Saka á því sinn þátt í því Arsenal á möguleika á að vinna magnaða tvennu þar sem liðið er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar og spilar úrslitaleik Meistaradeildarinnar í Búdapest 30. maí. Aðspurður hvort hann vildi frekar mæta Bayern eða PSG, sem spila í kvöld, sagði Saka: „Láttu ekki svona, það er ekki hægt að spyrja mig um þetta. Innst inni vitið þið hverjum við viljum mæta.“ Það er þó ekki alveg ljóst hvort Saka myndi vilja mæta PSG, sem sló Arsenal út úr Meistaradeildinni í fyrra, eða Bayern sem Arsenal vann 3-1 í deildarkeppni Meistaradeildarinnar í vetur. Varð að spila þrátt fyrir að hafa varla æft Í viðtali í beinni útsendingu CBS Sports eftir leikinn bað Henry um að Saka svaraði af hreinskilni um það hve mikið hann hefði þurft að þjást, andlega og líkamlega, að undanförnu. „Það er ekki alltaf bara glamúr að vera fótboltamaður. Hann hefur verið dreginn í efa alla leiktíðina. Getur hann verið aðalmaðurinn? Er hann ekki aðalmaðurinn? Er hann þessi stjörnustrákur? Er hann betri en þessi eða ekki betri en hinn? Í kvöld varð hann að spila þrátt fyrir að hafa varla æft. Ég veit að hann þjáist af verk í hásininni,“ sagði Henry í útsendingunni og vitnaði í samtal þeirra Saka þar sem hinn 24 ára gamli Saka sagðist einfaldlega verða að spila. "As soon as I step on the pitch and I put myself out there, I have to be ready for the criticism I face if I don’t perform."Bukayo Saka on embracing the pressure that comes with playing at the highest level 👇 pic.twitter.com/J5ZIlJqHov— CBS Sports Golazo ⚽️ (@CBSSportsGolazo) May 5, 2026 Henry sagði ljóst að Saka ætti allt hrós skilið en sjálfur vildi Saka ekki gera mikið úr sínum fórnum þegar hann svaraði spurningum Henry og félaga úr setti: „Þetta er ekki auðvelt en ég vil ekki tala um að ég eigi erfitt og láta fólk vorkenna mér. Þegar ég stíg út á völlinn verð ég að geta tekið öllu því sem gagnrýnendur segja, ef ég stend mig ekki, og þannig er þetta á þessu stigi. Við erum að keppa um stóra hluti – Englands- og Evrópumeistaratitil – svo það er mikið undir og ef maður stendur sig ekki þá fær maður gagnrýni,“ sagði Saka auðmjúkur.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Enski boltinn Arsenal FC Mest lesið „Stoltur af henni og hún á þetta mjög mikið skilið“ Sport Úrvalsdeildarfélög undirbúa málsókn gegn City Sport Haaland mætir ekki í viðtal eftir tíðindi dagsins Sport „Höfum talað digurbarkalega um það“ Fótbolti Internetið gerir grín að Caleb Williams Sport „Getum ekki mætt í neinn leik og leyft okkur að slaka á“ Sport Celtic og Rangers áfrýja Sport Nafnarnir í KA sáu um Val Sport Sjáðu stórkostlega aukaspyrnu Daníels Tristans gegn Frökkum Fótbolti „Sagði bara við hann, ég skal taka þetta“ Sport Fleiri fréttir Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Barry sendi Everton upp í fimmta sæti og Newcastle vann Hull Sjá meira