Of Monsters and Men með stórtónleika á Íslandi Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 29. apríl 2026 11:41 Hljómsveitin Of Monsters And Men stendur fyrir stórtónleikum í haust. Eva Schram Ofurhljómsveitin Of Monsters And Men halda stórtónleika í Kaplakrika þann 17. október næst komandi. Hljómsveitin hefur ekki spilað á Íslandi í nokkur ár en tilefnið er að ljúka heims tónleikaferðalagi á sínum heimaslóðum.
Nanna Bryndís Hilmarsdóttir, Ragnar Þórhallsson, Brynjar Leifsson, Kristján Páll Kristjánsson og Arnar Rósenkranz Hilmarsson mynda saman Of Monsters and Men sem er ein farsælasta hljómsveit Íslendinga. Ragnar söngvari og Arnar trommari tilkynntu tónleikana hjá Ívari Guðmunds á Bylgjunni rétt í þessu. „Við ætlum að halda tónleika hér heima loksins 17. október sem er ári frá því að platan kom út. Við ætlum að halda upp á það í Kaplakrika, enda þennan túr hér á Íslandi. Þetta verða síðustu tónleikar ársins,“ segja strákarnir og bæta við: „Það er alltof langt síðan við spiluðum hér síðast, Við tókum syrpu í Gamla Bíói í Covid. Þannig við erum ekkert smá spennt að koma heim og halda loksins tónleika.“ Aðspurðir segja þeir alltaf öðruvísi að spila hérlendis enda margir sem þeir þekkja í salnum. „Maður vill auðvitað vanda sig fyrir þá sem manni þykir vænst um.“ Hljómsveitin hefur verið starfandi í sextán ár og þeir segja stressið órjúfanlegan hluta af starfinu þegar þeir fara aftur af stað í tónleikaferðalag. „Jú það eru alltaf einhverjar efasemdir. Við tökum líka alltaf svo langar pásur sem er gott, en maður hugsar oft er fólk enn að fara að mæta? Það er mikið þakklæti á þessum túr yfir því að við getum enn gert þetta og mikið af fólki að mæta. Okkur þykir vænt um það að fá að gera þetta.“ Of Monsters And Men hefur byggt upp sterka og jákvæða ímynd á alþjóðavettvangi í mörg ár, komið fram á risa tónleikum og tónlistarhátíðum víða og ýmsum vinsælum spjallþáttum. Þá hafa lög sveitarinnar heyrst í vinsælum þáttum og kvikmyndum á borð við The Walking Dead, Marvel's Jessica Jones, Manifest, Grey's Anatomy og The Secret Live of Walter Mitty. Of Monsters And Men náði alheimsathygli þegar smellurinn Little Talks kom út árið 2011 en lagið er með yfir milljarð spilanna á streymisveitunni Spotify. Of Monsters And Men byrjaði að spila fyrir sextán árum og slóu í gegn úti í heimi fyrir fimmtán árum.Eva Schram Hljómsveitin hefur verið á tónleikaferðalagi um heiminn síðastliðið ár að fylgja eftir fjórðu breiðskífu sinni All Is Love And Pain In The Mouse Parade sem kom út síðasta haust. „Platan hefur slegið rækilega í gegn og þykir eitt þeirra besta verk til þessa. Tónleikarnir þeirra eru mikið sjónarspil og eru uppseldir í öllum borgum. Gagnrýnendur lofsama hljómsveitina fyrir einstaka tengingu við áhorfendur og kraftmikið tilfinningalegt ferðalag sem sýnir af hverju þau fylla tónleikahallir um allan heim aftur og aftur,“ segir í fréttatilkynningu. Hljómsveitarmeðlimir eru spenntir að halda loksins tónleika á Íslandi og þá sérstaklega í tilefni af eins árs afmæli plötunnar. Það lendir nefnilega þannig að það er akkúrat eitt ár upp á dag frá útgáfudegi plötunnar þegar tónleikarnir fara fram í haust. Þetta er því einstakt tækifæri til þess að sjá þessa mögnuðu hljómsveit stíga á svið og taka öll sín þekktustu lög og fagna með þeim afmæli plötunnar á heimkomu tónleikum. Miðasala á tónleikana hefst 1. maí á tix.is. Hægt er að hlusta á viðtalið við meðlimi OMAM á Bylgjunni í morgun í heild sinni hér að neðan:
Tónleikar á Íslandi Of Monsters and Men Tónlist Hafnarfjörður Tengdar fréttir Súrrealískt þegar Jay Leno vinkaði fjölskyldunni á Facetime Hljómsveitin Of Monsters and Men bar sigur úr býtum í Músíktilraunum árið 2010 þegar að meðlimir sveitarinnar voru um og yfir tvítugt. 21. ágúst 2025 11:00 Of Monsters and Men gefa út nýtt lag Hljómsveitin Of Monsters and Men gefur í dag út lagið Television Love. Fimm ár eru frá því að sveitin gaf síðast út lag. 1. júlí 2025 16:26 Mest lesið Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Lífið Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Lífið Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Lífið Plastgangsterar: Þegar Herra Hnetusmjör týndist í Laugardalshöllinni Gagnrýni Stjörnufans í matarboði Loga Pedro Lífið Stendur með Bríeti í deilunni við Pálma Tónlist Naglbíts-barn á leiðinni Lífið Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Lífið Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Lífið „Já, þau eru alvöru“ Lífið Fleiri fréttir Stendur með Bríeti í deilunni við Pálma Þá var kátt í höllinni Shakira sýknuð Þrjú hundruð kórbörn frumflytja lag Herra Hnetusmjör fagnar fyrir fullri Laugardalshöll „Þetta var erfiðasta ár lífs míns“ Nennti ekki að meika það Stjörnufans hjá Birni á Edition Fjarsamband alltaf erfitt Eurovision fer fram í vikunni en hlustunartölur hríðfalla Tónleikum Yasiin Bey frestað með dags fyrirvara fram á haust Ástarsorgin átakanleg en gjöful Joey Christ, Dóri DNA, og 7Berg í upphitun fyrir Yasiin Bey Kynþokkafullir með fortíðarþrá Stuðpinnar skáluðu í innsetningunni Shakira söng fyrir milljónir á Copacabana DJ Krush á Extreme Chill Of Monsters and Men með stórtónleika á Íslandi Ásgeir heldur stórtónleika í Hörpu í ágúst Úlfarnir rifu næstum þakið af Austurbæ Þjóðþekktir tónlistarmenn koma fram í heimahúsum Flóni og Alaska ekki lengur „bara vinir“ Námið ekki eins krefjandi og á Tene Samdi lagið meðan hún gekk í gegnum erfiða tíma Útför Björgvins Halldórssonar í beinni á Vísi og Sýn Forrest Gump rokksins allur Björk, Sigur Rós og ríflega þúsund aðrir krefjast sniðgöngu „Glowie-kaflanum í lífi mínu er lokið“ Hlustun á Bó snaraukist Milljónir í að efla tónleikastaði í miðbænum Sjá meira
Súrrealískt þegar Jay Leno vinkaði fjölskyldunni á Facetime Hljómsveitin Of Monsters and Men bar sigur úr býtum í Músíktilraunum árið 2010 þegar að meðlimir sveitarinnar voru um og yfir tvítugt. 21. ágúst 2025 11:00
Of Monsters and Men gefa út nýtt lag Hljómsveitin Of Monsters and Men gefur í dag út lagið Television Love. Fimm ár eru frá því að sveitin gaf síðast út lag. 1. júlí 2025 16:26