Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. apríl 2026 07:03 Eiður Smári Guðjohnsen kallar eftir leiktogum innan Chelsea og eftir leikmönnum sem elska félagið. Premier league Eiður Smári Guðjohnsen var harðorður þegar hann var í hlutverki sérfræðings á miðlum ensku úrvalsdeildarinnar þegar gerður var upp leikur Chelsea og Manchester City um síðustu helgi.
Chelsea steinlá 3-0 á heimavelli og mistókst að nálgast Liverpool í baráttunni um fimmta og síðasta sætið í Meistaradeildinni. Liðið hefur ekki litið sannfærandi út síðustu vikur. Eiður Smári var spurður út í gengið hjá Chelsea og í hvaða stöðu liðið væri eftir þennan skell á móti City. „Hversu mikinn tíma höfum við? Það er sennilega erfiðasta spurningin sem hægt er að spyrja. Hvert eru þeir að fara? Hver er uppbyggingin? Hver er framtíðarsýnin? Seinni hálfleikur. Ég held ég hafi aldrei séð Chelsea-lið verða jafnmikið undir í líkamlega hluta leiksins,“ sagði Eiður Smári en hélt áfram: Til hvers líta þeir upp til að fá innblástur? „Mér fannst ég vera að horfa á venjulega menn spila á móti leikmönnum með hæfileika. Til hvers líta þeir upp til að fá innblástur? Fer einhver inn í búningsklefann, tekur einhvern kverkataki, ef svo má að orði komast? Eiga þeir samskipti í þeim tilgangi að lyfta hvor öðrum upp, hækka getustig hvers annars? Gera kröfur hver til annars,“ sagði Eiður. „Ég hef ekki á tilfinningunni að það sé einhver Chelsea-leikmaður sem fer inn í búningsklefann eftir svona leik og er gjörsamlega niðurbrotinn? Ef við, á mínum dögum í þessu félagi, ef þú hefðir séð búningsklefann okkar eftir 3-0 tap á heimavelli. Ég hefði ekki sofið í fjóra daga,“ sagði Eiður. Er einhver sem elskar þetta félag? „Ég hef bara enga tilfinningu eða skynjun fyrir því, er einhver sem elskar þetta félag í raun og veru? Eru þeir með leiðtoga í búningsklefanum sem segir: Áttið þið ykkur á því fyrir hvaða félag þið eruð að spila?“ sagði Eiður eins og sjá má hér fyrir neðan. Klippa: Eldræða Eiðs Smára um Chelsea
Enski boltinn Chelsea FC Mest lesið „Það fyrsta sem sést er rassinn á mér“ Sport Tekur ekki við afsökunarbeiðninni og segir hann ljúga Fótbolti Eiginkona þjálfara hjá Chiefs skotin Sport Nýr leikmaður Tindastóls féll á lyfjaprófi þegar hann spilaði í G-deild NBA Körfubolti Samstarf við rússneskt veðmálafyrirtæki varð Pirlo að falli Fótbolti Endurkomur hjá kærustuparinu: „Þakklát og hamingjusöm“ Sport Jón Þór: „Ég er algjörlega orðlaus“ Íslenski boltinn Rúnar: Ég hef aldrei farið á Þjóðhátíð Íslenski boltinn Hljóðlátu mótmælin munu ekki fara fram hjá neinum Fótbolti Infantino svarar gagnrýnendum í langri færslu: „Heimurinn þarf ást, ekki hatur“ Fótbolti Fleiri fréttir Alonso vill tvo hálffertuga í liðið Segir að Defoe hafi skrópað á æfingu í fyrsta stjórastarfinu Chiesa elskar Liverpool og vonast eftir „nýju upphafi“ Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Sjá meira