Orbán játar sig sigraðan Agnar Már Másson skrifar 12. apríl 2026 19:28 Sextán ára valdatíð Viktors Orbán er nú á enda. Sean Gallup/Getty Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, játar sig sigraðan í ungversku þingkosningunum og óskar Péter Magyar, formanni stjórnarandstöðuflokksins Tisza, til hamingju með sigurinn. Fyrstu tölur úr kjörkössum benda til þess að Tisza vinni stórsigur.
Rúmlega 60 prósent atkvæða hafa verið talin, samkvæmt landskjörstjórn Ungverjalands. Samkvæmt töldum atkvæðum hlýtur Tisza 53 prósent atkvæða (136 þingsæti af 199) en Fidez-flokkur Orbáns hefur hlotið 38 prósent atkvæða (45 þingsæti). Flokkurinn Okkar Heimaland (Mi Hazánk) hefur fengið 6 prósent talinna atkvæða eða um 7 þingmenn. „Viktor Orbán forsætisráðherra óskaði okkur til hamingju með sigurinn símleiðis.“ Svo hljóðar samfélagsmiðlafærsla sem Péter Magyar, formaður Tisza. birti um kl. 19 í kvöld. Péter Magyar greiðir atkvæði í dag.Getty Skömmu síðar, um kl. 19.20, flutti Orbán ræðu þar sem hann viðurkenndi ósigurinn. „Lokaniðurstaða liggur enn ekki fyrir, en hún er skiljanleg og skýr. Niðurstöður kosninganna eru okkur sársaukafullar, en skýrar. Við fengum ekki umboð eða ábyrgð til þess að stjórna landinu. Ég hef óskað sigurvegaranum til hamingju,“ sagði Orbán. Orbán og íhaldsflokkur hans hafa stýrt Ungverjalandi frá 2010 ásamt KDNP, kristilegum demókrötum. Á þessum tíma hefur Orbán og hans stjórn grafið verulega undan lýðræðisstofnunum, fjölmiðlafrelsi og kosningakerfum landsins. Hann hefur til að mynda samið nýja stjórnarskrá og náð þvílíkri stjórn á fjölmiðlum landsins að honum hefur tekist að koma algjörlega í veg fyrir það að Magyar sé boðið að tala í ríkissjónvarpi Ungverjalands. Péter Magyar á blaðamannafundi í vikunni.Getty Ráðamenn í Brussel anda nú væntanlega léttar enda hefur Evrópusambandið lýst áhyggjum af stöðu lýðræðis í landinu síðustu ár. Orbán nýtur stuðnings Donalds Trump Bandaríkjaforseta og hefur sterk tengsl við stjórnvöld í Rússlandi. Á vettvangi Evrópusambandsins hefur Orbán oft reynt að hindra samþykktir um aukinn fjárstuðning við Úkraínumenn vegna innrásarstríðs Rússa og það er opinbert leyndarmál að fjöldi Evrópuleiðtoga vonast eftir því að honum verði steypt af stóli. Orbán hefur í kosningabaráttu sinni lagt mesta áherslu á það að vara við ytri hættum sem hann segir ógna Ungverjum. Þar er stríðið í nágrannaríkinu Úkraínu efst á blaði en Orbán er náinn bandamaður stjórnvalda í Rússlandi. Magyar hefur einbeitt sér að málum eins og verðbólgu, framfærslukostnaði og versnandi ástandi opinberrar heilbrigðisþjónustu og samgangna. Hann var sjálfur áður í Fidesz-flokknum en leiðir nú Tisza-flokkinn. Hann er 45 ára lögfræðingur en flokkurinn var myndaður úr fjölda stjórnarandstöðuflokka sem töldu sig þurfa að vinna saman til að koma Orbán frá í núverandi kosningakerfi. Hann hefur ferðast vítt og breitt um landið í tvö ár til að reyna að ná til hluta af stuðningsmönnum Orbáns í dreifbýlinu. Fréttin hefur verið uppfærð.
Ungverjaland Kosningar í Ungverjalandi Evrópusambandið Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Fleiri fréttir Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Sjá meira