Kosningar í Ungverjalandi

Fréttamynd

Innan­búðar­maðurinn sem lagði Or­bán

Verðandi forsætisráðherra Ungverjalands, Péter Magyar, var innanbúðarmaður í flokki Viktors Orbán þar til fyrir örfáum árum. Hann er sagður umdeildur, jafnvel á meðal eigin kjósenda. Magyar þykir metorðagjarn, hrokafullur og jafnvel andstyggilegur.

Erlent
Fréttamynd

Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér

„Ungverjar sögðu já við Evrópu í dag,“ sagði Péter Magyar, formaður Tisza-flokksins sem vann stórsigur ungversku þingkosningunum í kvöld. „Þeir sögði já við frjálst Ungverjaland,“ hélt hann áfram í ræðu á kosningavöku flokksins. Hann bað forseta Ungverjalands um að veita flokknum stjórnarmyndunarumboð og segja svo strax af sér. „Ég bið allar strengjabrúðurnar sem hafa verið við völd síðustu sextán ár um að gera slík hið sama,“ bætti hann við.

Erlent
Fréttamynd

Orbán játar sig sigraðan

Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, játar sig sigraðan í ungversku þingkosningunum og óskar Péter Magyar, formanni stjórnarandstöðuflokksins Tisza, til hamingju með sigurinn. Fyrstu tölur úr kjörkössum benda til þess að Tisza vinni stórsigur. 

Erlent
Fréttamynd

Orbán skákað í síðustu skoðana­könnuninni

Stjórnarandstöðuflokkur Péters Magyar vinnur þingkosningarnar í Ungverjalandi með 55,5 prósent atkvæða samkvæmt síðustu skoðanakönnunum sem gefnar hafa verið út eftir lokun kjörstaða. Forsætisráðherrann Viktor Orbán horfir þar upp á fylgistap þar sem Fidesz-flokknum er spáð 37,9 prósentum atkvæða.

Erlent
Fréttamynd

Allra augu verða á Ung­verja­landi í kvöld

Heiftúðugri baráttu lýkur í dag þegar milljónir Ungverja kjósa til þings. Raðir eru víða á kjörstöðum sem verður lokað klukkan fimm síðdegis að íslensku tíma. Evrópa öll fylgist með öndina í hálsinum með þegar fyrstu tölur detta inn enda benda skoðanakannanir til þess að sextán ára valdatíð Viktors Orbán forsætisráðherra gæti lokið í kvöld.

Erlent
Fréttamynd

Komið að ögur­stundu

Leið­togar stærstu stjórn­mála­flokka Ung­verja­lands héldu sína síðustu kosninga­fundi á laugar­dagskvöld á loka­metrum langrar baráttu sem endar með kosningum á sunnu­dag. Viktor Or­bán hefur setið á for­sætis­ráðherrastóli í sex­tán ár og stendur nú frammi fyrir sinni stærstu pólitísku próf­raun til þessa þegar mið-hægri­flokkurinn Tisza mælist með tveggja stafa for­skot í flestum óháðum skoðanakönnunum.

Erlent
Fréttamynd

Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt út­lit í könnunum

Kálið er ekki endilega sopið þótt í ausuna sé komið hjá ungversku stjórnarandstöðunni þrátt fyrir að hún mælist með töluvert forskot á flokk Viktors Orbán forsætisráðherra fyrir kosningar sem fara fram á sunnudag. Stórveldi fylgjast grannt með úrslitunum en Orbán er helsti bandamaður bæði Rússa og Bandaríkjamanna í Evrópu.

Erlent
Fréttamynd

Gagn­rýna tví­skinnung Vance í Ung­verja­landi

Talsmaður þýsku ríkisstjórnarinnar segir varaforseta Bandaríkjanna að líta í eigin barm eftir að sá síðarnefndi sakaði Evrópusambandið um að reyna að hlutast til í þingkosningum í Ungverjalandi. Varaforsetinn heimsótti Orbán innan við viku fyrir kosningarnar.

Erlent
Fréttamynd

Bauð Pútín að vera „músin“ hans

Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, bauð Vladímír Pútín Rússlandsforseta alla þá aðstoð sem hann gæti veitt honum í haust. Ungverski leiðtoginn, sem hefur komið í veg fyrir lánveitingar ESB til Úkraínu, sagðist geta verið músin sem hjálpaði ljóninu Pútín.

Erlent
Fréttamynd

JD Vance heim­sækir Orban fyrir kosningarnar um helgina

JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, er væntanlegur í opinbera heimsókn til Ungverjalands í dag, til að sýna stuðning sinn við forsætisráðherrann Victor Orban fyrir kosningar í landinu á sunnudag. Flestar skoðanakannanir sýna Orban tapa kosningunum.

Erlent
Fréttamynd

Skrúfa fyrir eina helstu leiðina fyrir gas til Úkraínu

Ríkisstjórn Viktors Orbán í Ungverjalandi hefur ákveðið að skrúfa fyrir gasleiðslur til Úkraínu til þess að knýja á um að olíuleiðsla frá Rússlandi verði opnuð aftur. Orbán hefur tekið upp enn harðari stefnu gegn Úkraínu en áður í harðri kosningabaráttu sem hann háir heima fyrir.

Erlent
Fréttamynd

Sakar Orbán og fé­laga um land­ráð

Péter Magyar, sem kannanir benda til að sé líklegur til að velta Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, úr sessi í komandi kosningum þar í landi, segir að meintar uppljóstranir milli Búdapest og Moskvu um leynilegar upplýsingar Evrópusambandsins verði rannsakaðar. Kannanir benda til þess að flokkur Magyars geti sigrað Fidesz-flokk Orbáns í þingkosningum sem fara fram í næsta mánuði.

Erlent