Lægðin heldur áfram að angra landsmenn Atli Ísleifsson skrifar 27. mars 2026 07:16 Snjókoma eða él fylgir veðrinu, og mun bæta talsvert í ofankomu með kvöldinu. Vísir/Vilhelm Lægðin heldur áfram að angra landsmenn í dag þegar hún ferðast suður með landinu á norðausturleið og veldur hvassviðri eða stormi um vestanvert landið. Hvassast verður á Vestfjörðum.
Á vef Veðurstofunnar segir að snjókoma eða él fylgir veðrinu, og mun bæta talsvert í ofankomu með kvöldinu. Gular viðvaranir hafa þegar tekið gildi eða munu taka gildi víða um land í dag vegna hvassviðrisins – á Faxaflóa, Breiðafirði, Vestfjörðum, Suðausturlandi, Miðhálendi og Ströndum og Norðurlandi vestra. Svona verður staða viðvarana klukkan 18 í kvöld.Veðurstofan „Síðdegis tekur að hvessa um landið austanvert og verður orðið verulega hvasst suðaustanlands annað kvöld og aðfaranótt laugardags, en þá er útlit fyrir rok eða ofsaveður og snjókomu austan Öræfa og samtímis lægir vestantil,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Um hádegi á laugardag verður lægðin loks búin að fjarlægjast landið og dregur þá úr vindi um landið austanvert og útlit fyrir bjartviðri í flestum landshlutum, en þá færist aftur fjör í leika, fyrst í suðvestri. „Seint á laugardagskvöld er útlit fyrir storm eða rok víða um land og snjókomu, en slyddu eða skúrir með ströndinni sunnan- og vestantil. Staðbundið gæti verið um ofsaveður að ræða með hviðum yfir 40-45 m/s. Vindur verður þó hægari um landið norðaustanvert fram eftir kvöldi og yfirleitt þurrt.Á Pálmasunnudag verður fremur rólegt veður með éljum, slydduéljum eða skúrum, en hvassviðri verður nyrst á landinu með snjókomu. Úrkomuminna verður sunnan jökla. Síðan tekur að hvessa suðaustan- og austantil með deginum. Hiti verður um og undir frostmarki með ströndinni norðanverðri, en að 6 stigum um landið sunnanvert að deginum. Þó stutt sé í hlýja vorloftið suður af landinu, þá mun kalda loftið halda áfram að minna reglulega á sig, að minnsta kosti vel inn í næstu viku,“ segir í tilkynningu. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Breytileg átt 3-10 m/s og bjart með köflum, en norðvestan 18-25 og dálítil snjókoma austantil fram undir hádegi. Frost 1 til 8 stig. Gengur í suðaustan 15-23 m/s síðdegis með snjókomu, slyddu eða rigningu og hlýnandi veðri, fyrst sunnan- og vestanlands. Á sunnudag: Yfirleitt vestlæg átt 8-15 m/s og snjókoma, en strekkingur og talsverð ofankoma um landið norðanvert. Él eða slydduél sunnanlands. Hiti um frostmark. Á mánudag: Fremur hæg suðlæg átt og dálítil él norðan til, annars þurrt að mestu. Hiti breytist lítið. Tekur að hvessa með kvöldinu með talsverðri snjókomu, fyrst sunnantil. Á þriðjudag: Vestlæg átt og él, en þurrt að mestu og bjart austanlands. Vægt frost norðvestanlands, annars hiti um og yfir frostmarki með ströndinni. Á miðvikudag: Útlit er fyrir suðlæga átt og bætir í ofankomu vestanlands, annars þurrt, en styttir upp með kvöldinu. Hiti um eða undir frostmarki. Hlýnar heldur. Á fimmtudag: Útlit er fyrir fremur ákveðna suðaustlæga átt, einkum um sunnan- og vestanvert landið, með skúrum eða slyddu, en snjókomu vestantil með kvöldinu. Hiti 1-6 stig að deginum.
Veður Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Fleiri fréttir Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Sjá meira