Sport

Hleypur kíló­metra hring hundrað sinnum og stefnir á stigamet

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Arnar Pétursson er með háleit markmið fyrir hundrað kílómetra hlaup sitt í Slóveníu.
Arnar Pétursson er með háleit markmið fyrir hundrað kílómetra hlaup sitt í Slóveníu. vísir

Arnar Pétursson ætlar að hlaupa eins kílómetra hring hundrað sinnum í lok þessa mánaðar og stefnir á slá stigamet Íslendinga í götuhlaupi í leiðinni. Hann segir líkamann eiga að höndla álagið og undirbúninginn aðallega snúa að andlegu hliðinni.

Arnar hefur verið einn albesti hlaupari landsins í langan tíma og undanfarið einbeitt sér að enn lengri vegalengdum en vanalega. Næst á dagskrá er hundrað kílómetra hlaup í Slóveníu þann 28. mars.

„Markmiðið þar er að reyna að hlaupa stigahæsta afrek Íslendings í götuhlaupi. Ég þyrfti þá að hlaupa í kringum 3:49 meðal pace í hundrað kílómetra. Það þýðir að ég er að fara í gegnum maraþon á rétt undir 2 tímum og 40 mínútum, og geri það tvisvar og hálfu sinnum,“ sagði Arnar.

En þetta hundrað kílómetra hlaup spannar ekki hundrað kílómetra braut heldur er einn og sami eins kílómetra hringurinn hlaupinn hundrað sinnum. Sem verður væntanlega mikil andleg áskorun.

„Þarna viltu hugsa bara um tímann, frekar en vegalengdina. Ég veit að ég ætla að vera svona 6 klukkutíma og 20 mínútur, eitthvað í kringum það. Þannig að ég veit bara hversu mikill tími er eftir, en leyfi bara kílómetrunum að koma.“

Arnar er alls ekki óvanur löngum hlaupum og hefur meðal annars unnið Laugavegshlaupið. 

Arnar er líka byrjaður að undirbúa andlegu hliðina með því að hlaupa mjög tilbreytingalaus hlaup á hlaupabretti.

„Ég tók til dæmis maraþonæfingu í gær, þar sem ég hljóp maraþon á brettinu. Stillti bara hraðann á brettinu og hljóp. Það var líka æfing í því að innstilla sig inn á hraðann, ekki hreyfa neitt við brettinu og bara halda.“

Götuhlaupið í Slóveníu verður ekki með eins fjölbreytta leið og flest hlaup. 

Stigametið sem Arnar stefnir á að slá er í eigu Baldvins Þórs Magnússonar en Baldvin setti stigametið samhliða Íslandsmeti sínu í 10 kílómetra hlaupi í Valencia síðasta janúar.

„Þetta gefur manni bara extra hvatningu [að hafa svona markmið]. Af því ég veit að þetta á eftir að verða ógeðslega erfitt á einhverjum tímapunkti, en þá er maður með fleiri hluti til að ýta sér áfram.“

Fjallað var um væntanlegt hundrað kílómetra hlaup Arnars í Sportpakka Sýnar í gærkvöldi. Innslagið má sjá í spilaranum að ofan. 


Tengdar fréttir

Segir Klæbo geta hlaupið upp Esjuna á mettíma

Skíðagöngukappinn Johannes Klæbo sópaði til sín sex gullverðlaunum á Vetrarólympíuleikunum og öðlaðist heimsfrægð. Einna helst vakti hann athygli fyrir ótrúlegan hraða í miklum halla í sprettgöngunni, en hversu hratt fór hann og er hægt að leika þetta afrek eftir?

Hlaupabrettið kemst ekki upp í hraða Baldvins

Hlaupasérfræðingur segir að nýtt Íslandsmet Baldvins Þórs í tíu kílómetra hlaupi komi honum á kortið með betri hlaupurum Evrópu. Baldvin Þór Magnússon bætti eigið Íslandsmet í 10 kílómetra götuhlaupi um tæpa mínútu í Valencia á Spáni á sunnudaginn. Hlauparinn hefur verið á mikilli siglingu síðustu mánuði en hann setti Íslandsmet í greininni í október í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×