Elvar en ekki Friðriksson Sindri Sverrisson skrifar 5. mars 2026 22:43 Elvar Már Friðriksson er mættur aftur til Litáen eftir hetjudáðir sínar með íslenska landsliðinu. Getty/Jón Gautur Elvar Már Friðriksson var heiðraður með skemmtilegum glaðningi þegar hann sneri aftur til félagsliðs síns í Póllandi, eftir vægast sagt hetjulega frammistöðu með íslenska landsliðinu.
Elvar hefur verið leikmaður Anwil Wloclawek í Póllandi frá því síðasta sumar og borið föðurnafn sitt aftan á treyjunni, eins og gjarnan tíðkast í íþróttum þó svo að það rími illa við íslenska nafnahefð. Hann fékk hins vegar nýja treyju afhenta á æfingu í vikunni og mun nú bera skírnarnafnið sitt, Elvar, á treyjunni. View this post on Instagram A post shared by Klub Koszykówki Włocławek (@anwilwloclawek) Eflaust hafa menn viljað heiðra Elvar sérstaklega eftir stórbrotna frammistöðu hans í sigrinum gegn Litáen síðastliðinn föstudag, þar sem Elvar leiddi Ísland í ótrúlegri endurkomu eftir að liðið hafði lent 21 stigi undir. Sú frammistaða vakti mikla athygli. Í færslu á Instagram segir að fólkið hjá Anwil Wloclawek sé stolt af því að félagið sé það fyrsta sem merkir búning Elvars með nafni hans en ekki föðurnafninu. Elvar hefur verið í atvinnumennsku meira og minna frá því að þessi 31 árs gamli Njarðvíkingur kvaddi bandaríska háskólakörfuboltann árið 2018, eftir að hafa spilað þar með LIU Brooklyn og Barry háskólanum. Hann hefur síðan spilað í Frakklandi, Svíþjóð, Litáen, Belgíu, Ítalíu, Grikklandi og nú Póllandi.
Körfubolti Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Körfubolti Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli Körfubolti „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Körfubolti Fleiri fréttir Starfsfólki og þjálfurum Knicks finnst það vera svikið Trump sakar LeBron um að sýna Bandaríkjunum vanvirðingu „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Uppgjörið: Höttur - ÍR 108-96 | Heimamenn sterkari í seinni Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Sjá meira