Harmar baulið á leikmenn sem fengu að brjóta föstu Sindri Sverrisson skrifar 1. mars 2026 12:01 Pep Guardiola gat rætt við sína leikmenn stuttlega þegar hlé var gert á leiknum við Leeds í gær, svo menn gætu nærst. Getty/Robbie Jay Barratt Pep Guardiola, stjóri Manchester City, setti út á framkomu stuðningsmanna Leeds í 1-0 sigri City í gær. Þeir kölluðu ókvæðisorð að Guardiola og bauluðu á múslimska leikmenn City sem fengu pásu til að nærast í leiknum.
Guardiola kippti sér reyndar ekkert upp við það að eitthvað væri kallað á hann og grínaðist með það á blaðamannafundinum eftir leik. Hann var hins vegar óánægður með framkomu þeirra stuðningsmanna sem bauluðu þegar hlé var gert á leiknum sem svo leikmenn gætu brotið föstu. Klippa: Guardiola um köllin og baulið Omar Marmoush, Rayan Aït-Nouri og Rayan Cherki eru allir Múslimar, sem og Abdukodir Khusanov sem var varamaður í gær. Þeir fasta því á meðan á Ramadan stendur, frá 17. febrúar til 19. mars í ár, og eiga á þeim tíma því að sleppa því að borða og drekka frá dagrenningu og fram að sólsetri. Þegar um kvöldleiki er að ræða eins og í gær gefur enska úrvalsdeildin því möguleika á að gera stutt hlé á leikjum svo að leikmenn geti fengið næringu. Þessu tóku hins vegar einhverjir stuðningsmanna Leeds illa og bauluðu á leikmennina. „Svona er heimurinn í dag, ekki satt? Við vitum jú öll hvað er að gerast aftur í heiminum í dag?“ sagði Guardiola á blaðamannafundinum í gær. „Sýnum trúarbrögðum virðingu. Sýnum fjölbreytileikanum virðingu. Um það snýst þetta. Svona eru reglurnar og við settum þær ekki. Það var enska úrvalsdeildin sem sagði að það mætti stoppa leiki í 1-2 mínútur þegar leikmenn eru að fasta. Svo já, svona er þetta. Þetta er miður,“ sagði Guardiola.
Enski boltinn Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Arbeloa í brasi Enski boltinn Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira