Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Sindri Sverrisson skrifar 6. febrúar 2026 15:31 Mikel Arteta léttur á leiknum gegn Chelsea í vikunni. Getty/John Walton Mikel Arteta, stjóri Arsenal, verður áfram án lykilmanna í leiknum við Sunderland á morgun. Þetta staðfesti hann á blaðamannafundi og svaraði ásökunum um virðingarleysi í garð Chelsea.
Liam Rosenior, kollegi Arteta hjá Chelsea, sakaði Arsenal um skort á virðingu í tengslum við leik liðanna í undanúrslitum enska deildabikarsins í vikunni. Hann var óánægður með það hvernig Arsenal-menn höguðu sér í upphitun fyrir leikinn, með því að fara inn á vallarhelming Chelsea, og sagði þeim að „fokking halda sig“ á sínum helmingi. „Það eru ákveðnar siðareglur í fótbolta. Ég á ekkert sökótt við neinn hjá Arsenal. Það var bara á þessu augnabliki sem mér fannst liðinu mínu ekki sýnd virðing,“ sagði Rosenior á blaðamannafundi í gær. Arteta var spurður út í þessi ummæli á blaðamannafundi í dag og svaraði: „Ég veit ekki, þetta er hans skoðun og við virðum alla. Ef að einhver úr mínu starfsliði gerði þetta á einhverjum tímapunkti, þá biðjumst við afsökunar. Þetta er mjög algengt í fótbolta. Markverðrnir þurfa að sparka langt.“ Ödegaard og Saka ekki með Arsenal vann Chelsea og komst í úrslitaleik deildabikarsins, og á því möguleika á þrennunni á Englandi. Liðið er sex stigum fyrir ofan Manchester City á toppi ensku úrvalsdeildarinnar en á snúinn leik við Sunderland á morgun. Þar verður Arsenal án fyrirliðans Martins Ödegaard sem og án Bukayo Saka. Hvorugur er alvarlega meiddur en þeir misstu einnig af leiknum við Chelsea í vikunni. Jurrien Timber er klár í slaginn á morgun en Mikel Merino verður hins vegar frá keppni næstu mánuðina vegna sinna meiðsla.
Enski boltinn Arsenal FC Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Íslenski boltinn „Engar tilviljanir í lífinu og sérstaklega ekki í íþróttum“ Fótbolti Baulað á Trump í New York Körfubolti KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Körfubolti Yfirheyrður í ellefu tíma: „Ég er með réttu skjölin og vegabréfsáritun“ Fótbolti Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Íslenski boltinn „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ Körfubolti Fleiri fréttir Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Sjá meira