Keegan með krabbamein Sindri Sverrisson skrifar 7. janúar 2026 20:11 Kevin Keegan stýrði meðal annars Newcastle í tvígang, eftir afar farsælan feril sem leikmaður. Getty/Owen Humphreys Fótboltagoðsögnin Kevin Keegan hefur fengið góðar batakveðjur frá bæði Liverpool og Newcastle eftir að fjölskylda hans greindi frá því í dag að hann hefði greinst með krabbamein.
Keegan, sem er 74 ára gamall, er fyrrrverandi leikmaður og þjálfari enska landsliðsins. Hann átti magnaðan feril sem leikmaður, sérstaklega á gullaldarárum með Liverpool á áttunda áratugnum, og bæði lék með og stýrði síðar Newcastle ásamt fleiri liðum. „Kevin var nýlega lagður inn á sjúkrahús til frekari rannsókna eftir einkenni í maga. Þessar rannsóknir hafa leitt í ljós krabbamein sem Kevin mun nú fara í meðferð við,“ sagði í tilkynningu frá fjölskyldu Keegans. „Kevin er þakklátur læknateyminu fyrir inngrip þess og áframhaldandi umönnun,“ sagði þar einnig auk þess sem óskað var eftir því að Keegan og hans fjölskylda fengi frið frá fjölmiðlum og öðrum. Newcastle sendi frá sér skilaboð til „King Kev“ þar sem sagði að félagið stæði með honum í baráttunni alla leið, og að vonandi yrði bati hans góður og skjótur. Í tilkynningu frá Liverpool sagði að hugur og stuðningur allra hjá félaginu væri hjá Keegan, og að honum, fjölskyldu hans og vinum væru færðar bestu óskir.
Enski boltinn Mest lesið Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti „Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig“ Fótbolti Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Körfubolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Haukakonur fengu stóran skell í síðasta leik fyrir endurkomu Söru Íslenski boltinn „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti Argentíska landsliðið má búast við sekt Fótbolti Fleiri fréttir Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Sjá meira