Telja United mun líklegra til að enda í sjöunda en öðru sæti Sindri Sverrisson skrifar 3. nóvember 2025 17:00 Amad Diallo reddaði Manchester United stigi með frábæru jöfnunarmarki gegn Nottingham Forest. Getty/Alex Dodd Um tíma á laugardaginn sat Manchester United í 2. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, í lifandi stigatöflu deildarinnar, en eftir leiki laugardagsins var liðið í 7. sæti. Það er mun líklegri niðurstaða fyrir United en 2. sæti, að mati sérfræðinga Sunnudagsmessunnar á Sýn Sport.
Kjartan Atli Kjartansson skaut þessari spurningu á nafna sinn Kjartan Henry Finnbogason og Albert Brynjar Ingason, í þætti gærdagsins, og þeir voru ekki í nokkrum vafa um svarið. Hér að neðan má sjá brot úr þættinum. Klippa: Er Man. Utd líklegra til að enda í 2. eða 7. sæti? „United er nær sjöunda sæti. Það má ekki fara fram úr sér. Þetta er langt frá því að vera orðið eitthvað hrikalega sannfærandi,“ sagði Kjartan Henry og bætti við: „Eins og við höfum rætt varðandi Sesko, ef þú ert ekki með markaskorara inni í teig þá ertu aldrei að fara að vera mjög nálægt 2. sætinu. Það eru lið þarna fyrir ofan sem eru komin töluvert lengra.“ Segði þetta um öll lið fyrir utan City og Liverpool Eftir 2-2 jafnteflið við Nottingham Forest og aðra leiki helgarinnar er United raunar komið niður í 8. sæti, með 17 stig, en liðið er jafnt Tottenham, Chelsea og Sunderland að stigum en með verstu markatöluna (+1). Aðeins tvö stig eru upp í Manchester City í 2. sæti en Arsenal er efst með 25 stig, eftir tíu umferðir. Albert er stuðningsmaður Arsenal og hann hefur engar áhyggjur af því að United muni veita Arsenal einhverja keppni um titilinn: „Nei, ég geri það ekki. Ég myndi segja þetta um öll lið fyrir utan City og Liverpool. Chelsea, Tottenham og United eru öll nær 7. sæti og það er bara pakki af liðum þar,“ sagði Albert.
Enski boltinn Mest lesið Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Fótbolti Byrjaði mótið með enga styrktaraðila og áhyggjur af hótelkostnaði Sport Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks Sport Fleiri fréttir Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Sjá meira