Næsta lægð skellur á landið og von á asahláku og hvassvirði Atli Ísleifsson skrifar 31. janúar 2025 07:18 Spáð er áframhaldandi umhleypingum um helgina með hvössum sunnanáttum. Vísir/Vilhelm Næsta lægð nálgast landið í dag og gengur í suðaustanstorm og jafnvel -rok með rigningu og hlýindum, en helst að mestu þurrt á Norður- og Austurlandi.
Á vef Veðurstofunnar segir að ekki sé gert ráð fyrir snjókomu, nema til fjalla. Veðurviðvaranir vegna asahláku og hvassviðris eru í gildi um mest allt land. „Spáð er áframhaldandi umhleypingum um helgina með hvössum sunnanáttum, talsverðri rigningu, hlýindum og asahláku og er því fólk hvatt til að hreinsa frá niðurföllum og fráveituskurðum til að fyrirbyggja vatnstjón. Þó er útlit fyrir að það dragi allnokkuð úr vindi síðdegis á laugardag, en svo þarf að gefa sunnudagslægðinn gaum, nýjustu spár gera ráð fyrir að hún verði seinna á ferðinni en fyrri spár og eins að hún verði austar. Það gæti orðið til að veður verði ekki seins slæmt en á móti yrðu þá minni hlýindi. Vegna veðurhæðar eru ferðalangar hvattir til aka með gát, einkum ef ökutækin taka á sig vind,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Sunnan 15-23 m/s og rigning eða slydda með köflum, en hægari og bjart með köflum norðaustanlands. Dregur heldur úr vindi síðdegis. Hiti 2 til 8 stig, hlýjast fyrir norðan. Á sunnudag: Gengur í austan hvassviðri eða storm með slyddu eða rigningu seinnipartinn, einkum suðaustan og austantil, en mun hægari og úrkomuminna um landið vestanvert. Hiti nálægt frostmarki. Á mánudag: Suðvestlæg eða breytileg átt og allvíða él, en bjartviðri austantil. Kólnandi veður. Á þriðjudag: Suðvestanátt með éljagangi, en bjart að mestu norðaustantil. Hiti um og undir frostmarki. Á miðvikudag: Búast má við sunnanhvassviðri með úrhellisrigningu og hlýnandi veðri í bili. Á fimmtudag: Líkur á suðvestanátt með éljum vestantiol, en rigning austantil og mun hlýrra.
Veður Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Sjá meira