Forystufólk stjórnarflokkanna þurfti helgina og gærdaginn til að kanna grundvöll fyrir áframhaldandi samstarfi eftir að Katrín Jakobsdóttir sagði af sér embætti síðast liðinn föstudag. Hún hefur farið fyrir starfsstjórn að ósk forseta Íslands frá þeim tíma.
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins samþykkti tillögu Bjarna Benediktssonar formanns flokksins um áframhaldandi samstarf flokkanna ásamt breytingum á ráðherraskipan í gærkvöldi. Þingflokkar Framsóknarflokksins og Vinstri grænna samþykktu síðan sams konar tillögu í morgun.

Þingstörf lágu niðri í gær og í dag vegna viðræðna stjórnarflokkanna. En í dag varð ljóst að Bjarni Benediktsson yrði forsætisráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson fjármálaráðherra.
Við það flytur Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir sig aftur yfir í utanríkisráðuneytið. Svandís Svavarsdóttir verður innviðaráðherra og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir kemur ný í hennar stað í matvælaráðuneytið.

Málin tekin fastari tökum
Bjarni sagði á fréttamannafundi í dag að orkumálin og útlendingamálin verði tekin fastari tökum en hingað til. Fram væru komin frumvörp í útlendingamálum sem þyrftu að ná fram að ganga.
„Það sem ég sé fyrir mér að þurfi síðan að halda áfram að gera er að aðlaga íslenska löggjöf um innflytjendamál því sem er að gerast í dag á Norðurlöndunum. Þar sem löggjöfin er að taka breytingum í ljósi breyttra aðstæðna. Lögin um þessi efni voru smíðuð við allt, allt aðrar aðstæður heldur en eru uppi í dag á Íslandi,“ sagði Bjarni eftir fréttamannafund leiðtoga stjórnarflokkanna í dag.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson formaður Vinstri grænna sagði Vinstri græn ekki þar með vera að gleypa eitraða pillu. Stjórnarflokkarnir hefðu nýlega kynnt heildstæða framtíðarsýn í útlendingamálum og áfram yrði byggt á henni.
„Það þarf meiri aðstoð í skóla landsins þegar kemur að börnum innflytjenda. Það þarf að huga betur að tækifærum bæði barna innflytjenda og innflytjenda sjálfra til atvinnuþátttöku og hreinlega meta þeirra reynslu og nám. Ég tel að það sé lykilatriði til að vinna gegn stéttaskiptingu í landinu og jafna tækifæri fólks að við tökumst á við þennan málaflokk í heild sinni og við höfum lagt ríka áherslu á það hvað varðar innflytjendur,“ sagði Guðmundur Ingi.

Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins sagði tíma til kominn að Framsóknarmaður tæki við fjármálaráðuneytinu eftir 45 ára fjarveru þaðan. Fjármálaáætlun væri væntanleg og mikilvægt að halda jafnvægi í ríkisfjármálum.
„Vissulega eru einhverjar áherslubreytingar með mannabreytingum. En stefnan er skýr. Við ætlum að vinna hér áfram að því að fá kjarasamningana til að virka. Þær stuðningsaðgerðir sem við erum að leggja fram, klára þær hratt og vel í þinginu þannig að þær komi til framkvæmda og styðji við það að verðbólga fari minnkandi og vextir þar með.“
Sannfærður um að stjórnin sé á réttri leið
Gangið þið inn í þetta samstarf núna til næstu átján mánaða fullviss um þið eyðið ekki mestu kröftunum í að takast á innbyrðis?
„Já, við höfum kannski ekki verið að því á undanförnum mánuðum og misserum. En það er alveg rétt að það hefur verið uppi ágreiningur um einstaka hluti og einstaka málaflokka jafnvel. Þess vegna gáfum við okkur góðan tíma, þessa daga, til að ræða þetta. Og komum hér í dag sannfærðir um að við séum á réttri leið og búin að tala okkur saman um hvernig við getum náð utan um það,“ sagði formaður Framsóknarflokksins.

Ný forsætisráðherra leggur líka áherslu á breytingar í orkumálum. Virkja þurfi meira meðal annars til að ná fram markmiðum stjórnvalda í loftslagsmálum. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra vinni nú að úttekt á umgjörð virkjanamála.
Guðmundur Ingi sagði Vinstri græn aldrei hafa verið á móti virkjunum. Hins vegar hefði flokkurinn lagt áherslu á að vel væri hugað að náttúruverndarmálum þegar kæmi að virkjunum og muni gera það áfram.
Vinstri græn hafa tafið framgang frumvarpa dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins á undanförnum árum um breytingar á lögreglumálum, um auknar rannsóknarheimildir til lögreglunnar. Bjarni segist leggja kapp á að frumvarp þar að lútandi sem nú liggi fyrir þinginu klárist.
„Og ég er mjög vongóður um að við fáum lendingu í því. Við þurfum líka eins og allar ríkisstjórnir að horfast í augu við að dagafjöldinn er takmarkaður á þinginu. Við þurfum að nýta tímann vel til að tryggja að þau mál sem mestu skipta fái framgang en tíminn fari kannski ekki um of í mál sem minna máli skipta, sagði Bjarni Benediktsson.