Hörð gagnrýni á Haaland: „Eins og leikmaður í D-deild“ Sindri Sverrisson skrifar 1. apríl 2024 13:02 Erling Haaland hefur bókstaflega raðað inn mörkum fyrir Manchester City síðustu tvær leiktíðir en þarf að bæta sig að mati sérfræðinga Sky Sports. Getty/Justin Setterfield Roy Keane sparaði ekki stóru orðin þegar hann gagnrýndi stjörnuframherjann Erling Haaland eftir markalaust jafntefli Manchester City og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær.
Leikurinn var vægast sagt tíðindalítill og rétt eins og þegar liðin mættust í október þá mistókst Haaland, líkt og öðrum leikmönnum City, að finna leiðina að marki Arsenal. Norðmaðurinn er enn markahæstur í ensku úrvalsdeildinni, með 18 mörk, eftir að hafa orðið markakóngur í fyrra en Keane telur Haaland þó algjöran meðaljón í ýmsum þáttum leiksins. „Getustigið hjá honum í almennum leik er svo lágt. Ekki bara í dag,“ sagði Keane sem var í hlutverki sérfræðings hjá Sky Sports. „Fyrir framan markið er hann sá besti í heiminum en grunnspilamennskan hjá honum er svo döpur. Hann er eins og leikmaður í D-deild [League 2 á Englandi], þannig lít ég á hann. Hann verður að bæta almennan leik sinn og mun gera það á næstu árum,“ sagði Keane. Micah Richards, annar sérfræðingur Sky, var sömuleiðis ekki hrifinn af frammistöðu Haalands. „Hann nýtir ekki líkamann og styrk sinn til að halda mönnum frá sér. Hann hefur haldið áfram að skora mörg mörk á þessari leiktíð en maður vill sjá hann bæta sig og hann getur gert betur þegar hann er með mann í bakinu,“ sagði Richards.
Enski boltinn Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Sjá meira