Tónlist

Hlustendaverðlaunin 2024: Þegar Sveppi og Ás­geir Orri mættu ó­vænt á sviðið

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Þarna voru þeir loksins komnir aftur saman, Auddi og Sveppi.
Þarna voru þeir loksins komnir aftur saman, Auddi og Sveppi. Vísir/Anton Brink

Allt ætlaði um koll að keyra á Hlustendaverðlaunum 2024 þegar óvæntir leynigestir mættu á sviðið með þeim Audda og Steinda. Þar tóku þeir mörg af sínum þekktustu lögum, lögum sem landsmenn hafa skemmt sér við um árabil.

„Ég var að segja þér stórar fréttir hérna áðan, ég hef unnið Hlustendaverðlaun áður, það var 2011. Ég held ég hafi unnið þau fyrir lag ársins,“ sagði Steindi rétt áður en hann tók eitt af sínum þekktustu lögum, Djamm í kvöld. Síðar átti Ásgeir Orri Ásgeirsson eftir að koma öllum á óvart þegar hann mætti til að taka Geðveikt fínn gaur með grínistanum.

„Ég man eftir mínum fyrstu Hlustendaverðlaunum, þá var ég fenginn upp á svið af því að ég var að koma í 70 mínútur. Það átti að kynna mig inn og kynna mig inn með látum. Talandi um 70 mínútur. Djöfull sakna ég 70 mínútna,“ sagði Auddi við mikil fagnaðarlæti áður en Sveppi krull mætti óvænt upp á sviðið.

Tvíeykið þeir Auddi og Steindi opnuðu Hlustendaverðlaunin í ár með pompi og prakt:

Horfa má á fleiri uppákomur og atriði af Hlustendaverðlaununum á sjónvarpsvef Vísis. 


Tengdar fréttir

Hlustendaverðlaunin 2024: Laufey, Patrik og Iceguys unnu tvöfalt

Hlustendaverðlaunin 2024 voru afhent við hátíðlega athöfn í Gamla bíói í kvöld. Stórstjarnan Laufey hlaut verðlaun sem söngkona ársins og fyrir plötu ársins, Bewitched. Patrik Atlason var valinn nýliði ársins og hlaut verðlaun fyrir lag ársins. Drengjasveitin Iceguys voru útnefndir flytjendur ársins og myndband þeirra við lagið Krumla var valið myndband ársins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×