Fótbolti

Sex dagar í EM-umspil: Aftur ís­lensk þjóð­há­tíð í München?

Sindri Sverrisson skrifar
Íslenska landsliðið fagnar marki gegn Slóvakíu síðasta sumar. Komist liðið á EM verða Slóvakar á meðal mótherja þess.
Íslenska landsliðið fagnar marki gegn Slóvakíu síðasta sumar. Komist liðið á EM verða Slóvakar á meðal mótherja þess. vísir/Diego

Hvað ef að íslenska karlalandsliðið í fótbolta næði að vinna EM-umspilið og tryggja sér farmiðann til Þýskalands í sumar? Dagskráin liggur fyrir.

Ísland mætir Ísrael fimmtudaginn 21. mars í undanúrslitum umspils um sæti á EM, og vegna stríðsins á Gasa fer leikurinn fram í Búdapest í Ungverjalandi. Sigurliðið spilar til úrslita 26. mars við sigurliðið úr leik Bosníu og Úkraínu, annað hvort í Bosníu eða Póllandi (vegna stríðsins í Úkraínu).

Vinni Ísland umspilið mun liðið leika í E-riðli Evrópumótsins í Þýskalandi í sumar. Fyrsti leikur yrði gegn Rúmeníu í München á sjálfan þjóðhátíðardaginn, 17. júní, svo að íslenskir stuðningsmenn gætu í annað sinn á þessu ári flykkst til München eftir að hafa vakið þar mikla athygli á EM í handbolta í janúar.

Leikur tvö yrði gegn Slóvakíu í Düsseldorf 21. júní og þriðji leikur gegn stjörnum prýddu liði Belgíu í Stuttgart 26. júní.

Möguleiki á sextán liða úrslitum

Á EM taka 24 þjóðir þátt, í sex fjögurra liða riðlum, og komast tvö efstu liðin úr hverjum riðli áfram í 16-liða úrslit. Fjögur lið með bestan árangur í 3. sæti komast einnig áfram, svo vonin um sæti í 16-liða úrslitum er vel raunhæf og einn sigur gæti dugað til þess, eins og hefur sýnt sig á síðustu mótum.

Það má líklega segja að Íslendingar, eða sigurvegarar umspilsins sem Ísland er á leið í, séu heppnir með riðil á EM. Dauðariðill mótsins er alla vega B-riðill; Spánn, Króatía, Ítalía og Albanía.

Kevin De Bruyne og Romelu Lukaku verða væntanlega með Belgum á EM en De Bruyne hefur glímt við meiðsli í vetur og missir af vináttuleikjum í þessum mánuði.Getty/Philippe Crochet

Belgar eru langlíklegastir til að vinna E-riðilinn, jafnvel þó að þeir hafi dalað og fallið út með skömm á HM í Katar. Stærstu stjörnurnar eru farnar að eldast eða hreinlega hættar, en liðið er samt með urmul gæðaleikmanna og nægir að nefna Manchester City-mennina Kevin De Bruyne og Jérémy Doku, eða þá Thibaut Courtois, Leandro Trossard og Romelu Lukaku.

Belgar leika undir stjórn Domenic Tedesco og hafa ekki tapað einum einasta leik frá því að hann tók við af Roberto Martínez eftir HM-fíaskóið.

Rúmenar afar sannfærandi í undankeppninni

Rúmenar hafa komist á mikið flug frá því að þeir töpuðu 2-1 fyrir Íslandi á Laugardalsvelli haustið 2020, í undanúrslitum umspilsins fyrir síðasta EM. 

Liðið er ekki skipað neinum stórstjörnum en hefur gert góða hluti undir stjórn Edward Iordanescu.

Rúmenar gerðu sér lítið fyrir í fyrra og unnu sinn riðil í undankeppni EM, án þess að tapa leik, og enduðu til að mynda fimm stigum fyrir ofan Sviss og sjö stigum fyrir ofan næstu mótherja Íslands, Ísrael.

Andstæðingur sem Ísland þekkir vel

Slóvaka þekkjum við Íslendingar svo enn betur eftir að hafa mætt þeim tvívegis í undankeppni EM á síðasta ári, og tapað í bæði skiptin. Fyrri leikurinn var sá fyrsti hjá Íslandi undir stjórn Åge Hareide og afar svekkjandi að flott frammistaða Íslands skyldi ekki duga til annars en 2-1 taps. Í útileiknum voru Slóvakar hins vegar sannfærandi og unnu 4-2.

Slóvakar eru með menn á borð við Milan Skriniar, Stanislav Lobotka, Ondrej Duda og markvörðinn Martin Dúbravka innanborðs, og ætla sér eflaust að veita Belgum keppni um efsta sæti riðilsins.

Fyrst á dagskrá er hins vegar EM-umspilið. Åge Hareide tilkynnir landsliðshóp sinn klukkan 16 í dag og Vísir fylgir íslenska liðinu svo eftir í Búdapest í næstu viku.


Tengdar fréttir

Átta dagar í EM-umspil: Njósnar fyrir Ísland í Bosníu

Åge Hareide, þjálfari karlalandsliðs Íslands í fótbolta, einbeitir sér alfarið að leiknum við Ísrael í EM-umspilinu í næstu viku en hefur valið tvo „njósnara“ til undirbúnings fyrir mögulegan úrslitaleik um EM-sæti.

Níu dagar í EM-umspil: Milljarðar gætu streymt til KSÍ

Knattspyrnusamband Íslands fékk 1,9 milljarða króna framlag frá UEFA vegna þátttöku sinnar á EM karla í Frakklandi 2016. Mögulegt verðlaunafé tengt Evrópumótinu í Þýskalandi í sumar er enn hærra. Evrópumeistararnir gætu fengið 4,2 milljarða króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×