Stjörnuleikmaður Arsenal ófrísk Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. mars 2024 17:03 Amanda Ilestedt hefur verið í veikindaleyfi en nú vitum við ástæðuna. Getty/Alex Burstow Sænska landsliðskonan Amanda Ilestedt spilar ekki fótbolta á næstunni því hún á von á barni.
Ilestedt spilar með enska úrvalsdeildarliðinu Arsenal sem hefur verið óheppið með meiðsli síðustu misser. Margar af stærstu stjörnum enska liðsins hafa slitið krossband en nú er ástæðan mun gleðilegri en slík leiðindarmeiðsli. „Það hefur verið erfitt að segja ekki sannleikann,“ sagði Amanda Ilestedt í viðtali á miðlum Arsenal. A special moment as @AmandaIlestedt reveals that she's expecting her first child pic.twitter.com/pPuot2VPVV— Arsenal Women (@ArsenalWFC) March 13, 2024 „Við erum ánægð að flytja ykkur þær gleðifréttir að Ilestedt á von á sínu fyrsta barni,“ sagði í frétt sinni á heimasíðu félagsins. Félagið óskaði enn fremur Ömundu og kærasta hennar Rainer Müller til hamingju. Ilestedt mun halda áfram að æfa sjálf og verður í stöðugu sambandi við læknalið Arsenal. Ilestedt hefur verið í veikindafríi að undanförnu og því ekki að spila með Arsenal liðinu í síðustu leikjum. Hin 31 árs gamla Ilestadt er lykilmaður hjá enska liðinu sem og hjá sænska landsliðinu. Hún skoraði fjögur mörk á síðasta heimsmeistaramóti og það þrátt fyrir að spila sem miðvörður. Eftir heimsmeistaramótið færði hún sig yfir frá Paris Saint-Germain til Arsenal. Hún nær því ekki að klára sitt fyrsta tímabil með liðinu. View this post on Instagram A post shared by Sportbladet (@sportbladet)
Enski boltinn Mest lesið Guðjóni Val líkt við íslenskt eldfjall eftir eldræðu á blaðamannafundi Handbolti Laun Infantino meira en þrefaldast á áratug Fótbolti Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Enski boltinn Grindavík - Njarðvík 68-72| Njarðvík tryggði sér oddaleik Körfubolti Heimsmeistarinn fremstur í sprettinum Formúla 1 Kærastan 31 ári yngri: „Ég fékk mikil viðbrögð í upphafi“ Handbolti Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Enski boltinn Haukur allt í öllu hjá Löwen Handbolti Þróttur og HK á toppnum Íslenski boltinn Njarðvíkingar rændir marki og þurfa að bíða lengur eftir sigri Íslenski boltinn Fleiri fréttir Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Færði tíðindi af Salah á blaðamannafundi í morgun Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Sjá meira