Chelsea nálgast efri hluta töflunnar

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Þessir tveir komu mikið við sögu í kvöld.
Þessir tveir komu mikið við sögu í kvöld. James Gill/Getty Images

Chelsea nálgast efri hluta ensku úrvalsdeildarinnar eftir 3-2 sigur á Newcastle United í kvöld. Cole Palmer var allt í öllu framan af hjá heimamönnum en hann kom að fyrstu tveimur mörkum liðsins í kvöld. Á sjöttu mínútu átti Palmer skot að marki sem fór af framherjanum Nicolas Jackson og þaðan framhjá Martin Dúbravka í marki gestanna.

Þegar tíu mínútur voru til loka fyrri hálfleiks þurfti Anthony Gordon að yfirgefa völlinn vegna meiðsla. Í hans stað kom Jacob Murphy inn hjá Newcastle. Ekki löngu síðar jafnaði Alexander Isak metin fyrir gestina með góðu skoti fyrir utan teig. 

Jackson hélt hann hefði komið Chelsea yfir á nýjan leik í uppbótartíma fyrri hálfleiks en markið dæmt af vegna rangstöðu. Staðan 1-1 í hálfleik.

Palmer kom Chelsea yfir eftir tæpa klukkustund með hnitmiðuðu skoti frá vítateigslínunni. Þegar tæpur stundarfjórðungur var til leiksloka bætti varamaðurinn Mykhailo Mudryk þriðja marki Chelsea við eftir að hafa aðeins verið á vellinum í tæpar fimm mínútur. 

Það mark reyndist heldur betur mikilvægt því varamaðurinn Murphy skoraði annað mark Newcastle í þann mund sem venjulegur leiktími rann sitt skeið.

Mörkin urðu ekki fleiri á Brúnni og 3-2 sigur Chelsea staðreynd.  Sigurinn þýðir að nú er aðeins eitt stig á milli Newcastle og Chelsea í 10. og 11. sæti deildarinnar. Newcastle með 40 eftir 28 leiki en Chelsea með 39 stig eftir 27 leiki.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira