Innlent

„Galið“ að opna bæinn upp á gátt

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Hörður Guðbrandsson, formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur.
Hörður Guðbrandsson, formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur. Vísir/Vilhelm

Formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur furðar sig á því að bærinn hafi verið opnaður fyrir búsetu og atvinnustarfsemi. Hann segir ekkert samráð hafa verið haft við verkalýðsfélögin fyrr en í morgun, þegar þau voru boðuð á fund með fulltrúum ráðuneyta. Ekki nema um tíu manns gistu í Grindavík í nótt, fyrstu nóttina eftir að bærinn var opnaður að fullu.

Frá og með deginum í gær var Grindvíkingum leyft að dvelja og starfa í bænum. Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri á Suðurnesjum reiknar með að nokkrir tugir verði við störf í bænum í dag.

„Það var tíðindalaust í nótt og við áætlum að það hafi verið dvalið í um tíu húsum kannski,“ segir Úlfar.

Enn er unnið að því að koma vatni á bæinn eftir að lagnir urðu fyrir tjóni í síðasta gosi; stefnt er á að kalt vatn byrji að streyma inn í Grindavík á morgun. Hörður Guðbrandsson formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur furðar sig á því að bærinn hafi verið opnaður til búsetu og atvinnu, einkum í ljósi stöðunnar á vatni og öðrum innviðum.

„Til búsetu, hann er alls ekki tilbúinn til þess. Við vitum að hann er mjög illa sprunginn víða og innviðir bara illa farnir, þannig að mér finnst það bara galið. Síðan er fólki sagt að það megi vera þarna á eigin ábyrgð en það sé alls ekki mælt með því. Ég líkti þessu við að við myndum afnema umferðarreglurnar og segja fólki bara að fara varlega, þetta sé hættulegt,“ segir Hörður.

„Starfsfólk er alveg tilbúið að hefja vinnu en það er ákveðinn hópur sem er hræddur við að vinna á þessu svæði og við þurfum að fanga þann hóp, það er ekki hægt að neyða fólk til að fara inn á hættusvæði að vinna ef það treystir sér ekki til þess.“

Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum.Vísir/Arnar

Hörður segir ekkert samráð hafa verið haft við verkalýðsfélögin fyrr í morgun, þegar fulltrúar fjögurra ráðuneyta funduðu með félögum.

„Við fórum yfir okkar sjónarmið, að það þyrfti að gera þetta á grundvelli vísinda og öryggis, við myndum alveg treysta okkur að vinna með fyrirtækjunum að því að gera þetta skynsamlega.“

Úlfar lögreglustjóri setur ekki út á afstöðu Harðar.

„Það er í sjálfu sér hans skoðun og ég geri í sjálfu sér enga athugasemd við það sem hann segir en staðan er þessi í augnablikinu.“ 

Hefði verið hægt að hafa meira samráð?

„Ef svo er ætti hann bara að setja sig í samband við mig.“

Við þetta má bæta að vísbendingar komu fram í morgun sem mögulega bentu til þess að hægt hefði á landrisi á svæðinu, sem gerst hefur í aðdraganda síðustu eldgosa. Við nánari úrvinnslu gagna kom í ljós að svo virðist ekki vera - landris haldi áfram með sama hætti og verið hefur, að sögn Salóme Jórunnar Bernharðsdóttur, náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands.


Tengdar fréttir

Náttúru­ham­fara­trygging vill hlut­deild í tekjum af fast­eignunum

Náttúruhamfaratrygging Íslands gerir athugasemd við að á sama tíma og gert sé ráðfyrir að fjármálaráðherra sé heimilt að ráðstafa eignum NTÍ til að fjármagna kaup á heimilum Grindvíkinga, sé ekki gert ráð fyrir að stofnunin fái neitt í staðinn.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×