Tónlist

Númer 3 en stefna á toppinn

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Útgáfupartý plötunnar „Númer 3“ var vel sótt og hafa þeir félagar síðan spilað í einu fimmtugsafmæli og eru byrjaðir að taka við fleiri bókunum.
Útgáfupartý plötunnar „Númer 3“ var vel sótt og hafa þeir félagar síðan spilað í einu fimmtugsafmæli og eru byrjaðir að taka við fleiri bókunum.

Ragnar Steinn Þórsson og Oddur Þórisson hafa unnið saman að tónlist undanfarin fimm ár og ákváðu í lok síðasta árs að slá loksins til og gefa út tónlist undir nafninu Númer 3. Þeir hafa gefið út eina smáskífu og eina plötu og eru hvergi nærri hættir.

Vísir náði tali af Ragnari Steini, tónlistarmanni og lögfræðinema, og ræddi við hann um hljómsveitina, tilurð hennar og það sem er framundan hjá bandinu.

Hvað kom til að þið fóruð að gera tónlist?

„Við kynntumst í menntaskóla og byrjuðum að gera tónlist á öðru eða þriðja ári. Hann Oddur hefur verið að pródúsa og unnið með öðrum tónlistarmönnum. Síðan fékk hann mig upp í stúdíó og við byrjuðum þar. Þetta hefur verið „on and off“ og síðan urðum við band fyrir svona þremur árum,“ segir Ragnar.

Föttuðu að nafnið skipti ekki höfuðmáli

Tónlist Númer 3 má lýsa sem rafpoppi í anda hljómsveita á borð við Kef lavík. Ragnar segir erfitt að að skilgreina stílinn nákvæmlega, hann hafi þróast í gegnum samstarfið á undanförnum árum.

Hvernig tónlist gerir Númer 3?

„Rafpopp er fín lýsing. Við höfum áður heyrt af samanburði við Kef Lavík og annað nýlegt popp. Við mynduðum þennan stíl á síðustu árum út frá því að vinna saman frekar en út frá hlustun á aðra þó það hafi auðvitað áhrif. Og ég er reyndar mikil Kef Lavík aðdándi,“ segir Ragnar.

Ragnar segir von á meiri tónlist frá Númer 3. Þeir séu heitir eftir síðustu útgáfu og sitji á nóg af efni.

Hvenær verður Númer 3 til?

„Nafnið varð til fyrir svona einu ári en við búnir að vera vinna saman í tæp fimm ár. Það er bara af því við vorum ógeðslega lengi að finna nafn og létum það trufla okkur aðeins of mikið kannski. Síðan föttuðum við að nöfnin skipta ekkert svo miklu máli. Mikið af tónlistarnöfnum eru flott af því tónlistin er góð,“ segir Ragnar Steinn.

„Við endum á einhverju mjög basic, ég held ég hafi nefnt ABC eða 123 til að finna eitthvað basic. Þannig komumst við að þessu nafni Númer 3 af því þetta á að vera catchy og kannski vekja upp einhverjar spurningar,“ segir hann.

Þannig það er ekki beint nein vísun í neitt? Af hverju ekki númer eitt eða númer tvö?

„Okkur fannst það hljóma vel. Það er ekki mikil hugsun á bak við það,“ segir Ragnar um nafnið.

Innblástur sóttur úr raunheimum en líka skáldað 

Þeir félagar semja lögin saman og segir Ragnar því erfitt að tiltaka hvaðan nákvæmlega innblástur er sóttur. Þar blandist saman þeirra eigin upplifanir við skáldaðar frásagnir. Ragnar syngur og Oddur semur lögin en sú verkaskipting er heldur ekki heilög.

Oddur Þórisson sér aðallega um að pródúsera lög Númer 3 en bregður sér þó líka stundum bak við mækinn.Aðsent

Hvernig skiptið þið verkum milli ykkar?

„Hann er alfarið í pródúksjón en syngur viðlög á fyrstu tveimur lögunum, Norðurljós og Feluleik. Það er ekki beint að ég sé bara söngvarann, hann er það líka. En hann vill oftar að ég fari á mækinn,“ segir Ragnar um verkaskiptinguna hjá honum og Oddi.

En þetta er blanda af söng og rappi eða hvað?

„Þetta er smá popprapp líka. Við gerum það á Feluleik, fyrsta laginu. Rappið er svo aðgengilegt og við munum örugglega feta þennan milliveg áfram milli rapps og söngs,“ segir Ragnar.

En umfjöllunarefnið? Hvert leitið þið eftir innblæstri?

„Við semjum textana mikið saman. Það er bæði innblásið af okkar eigin lífi en stundum búum við líka til texta með því að setja okkur í spor annarra og skálda einhverja sögu. Það er bara misjafnt, nútími, fortíð og skáldskapur,“ segir Ragnar.

Í einum grænum hvelli gemmér Pilsner

Við hlustun á Númer 3 vakti þessi lína hér að ofan sérstaka athygli blaðamanns og vöknuðu spurningar um það hvort hér væru á ferðinni miklir Pilsner-drykkjumenn. 

Þegar meðlimir Númer 3 voru spurðir út í þessa fleygu línu og hvort þeir drykkju mikinn Pilsner sögðu þeir línuna frekar vísa almennt í Pilsner sem bjór en Egils Pilsner. Það kom þó ekki fram hvort þeir drykkju mikið af Pilsnernum, óáfengum eða áfengum.

Þú ert í lögfræði, hvernig gengur að balansa það við tónlistina?

„Bara allt í lagi, ég útskrifast næsta sumar,“ segir hann. Það er því greinilega ekkert mál að halda jafnvægi milli þess að vera poppstjarna og að vera lögfræðinema

Nóg af tónlist á leiðinni

Hljómsveitin gaf út fyrsta singúlinn sinn 28. desember síðastliðinn og svo kom fyrsta plata hljómsveitarinnar út í janúar. Það er því stutt síðan hljómsveitin steig fram á sviðið en Ragnar segir nóg af tónlist á leiðinni.

Eruð þið búnir að halda einhverja tónleika?

Við vorum með útgáfupartý fyrir vini og vandamenn og það komu alveg hundrað manns plús. Það var rosa stuð. Svo spiluðum við í fimmtugsafmæli og það var líka stuð. Við erum að vinna í því núna að fá fleiri bókanir.

„Svo ætlum við að reyna að gefa út meira af tónlist eins hratt og við getum. Við bjuggum til svona hundrað lög áður en við gerðum þessi sex þannig við ættum að vera heitir,“ segir hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×