Fótbolti

Dæmdur í þriggja leikja bann fyrir að ýta Sané

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Nenad Bjelica ýtir í andlitið á Leroy Sané.
Nenad Bjelica ýtir í andlitið á Leroy Sané. getty/City-Press GmbH

Knattspyrnustjóri Union Berlin, Nenad Bjelica, hefur verið dæmdur í þriggja leikja bann fyrir að ýta í andlitið á Leroy Sané í leik liðanna í þýsku úrvalsdeildinni í fyrradag.

Atvikið átti sér stað á 74. mínútu. Sané reyndi þá á að ná boltanum af Bjelica sem ýtti tvisvar í andlit hans.

Bjelica var rekinn af velli og hefur nú verið dæmdur í þriggja leikja bann. Hann fékk einnig 25 þúsund evra sekt, sem gildir rúmlega 3,7 milljónum íslenskra króna.

Bayern vann leikinn gegn Union Berlin, 1-0, með marki Raphaëls Guerreiro. Með sigrinum minnkaði Bayern forskot Bayer Leverkusen á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar niður í fjögur stig.

Union Berlin er aftur á móti í 15. sæti deildarinnar, þremur stigum frá fallsæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×