Segir að fótboltinn hafi leitt til andláts dóttur sinnar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. nóvember 2023 10:00 Maddy Cusack, 1995-2023. getty/Cameron Smith Enska fótboltafélagið Sheffield United rannsakar nú atburði sem gætu hafa leitt til andláts Maddy Cusack í september.
Cusack var varafyrirliði Sheffield United og fyrsti leikmaðurinn sem spilar hundrað leiki fyrir kvennalið félagsins. Hún lést á heimili sínu 20. september, aðeins 27 ára. Lögreglan í Derbyshire sagði á sínum tíma að ekki væri grunur um að andlát Cusacks hefði borið að með saknæmum hætti. Fjölskylda Cusacks hefur núna birt líkræðuna sem móðir hennar, Deborah, flutti í jarðarför hennar. Þar segir að eitthvað tengt fótboltanum hafi komið fyrir Cusack í febrúar og brotið hana. „Fallega dóttir mín, Madelaine. Sorglega og nístandi ástæðan fyrir því að ég þarf að standa hér og tala við ykkur er út af fótbolta,“ sagði móðir Cusacks í ræðunni. „Frá febrúar var óbugandi og ódrepandi andinn, sem við kölluðum Maddy og vernduðum af öllum okkar mætti, brotinn og hún var tekin frá mér.“ Fjölskyldan sendi í kjölfarið frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að Sheffield United hafi ráðið fyrirtæki til að rannsaka atburðina sem leiddu til andláts Cusack. Í yfirlýsingunni segir Cusack hafi alltaf verið glöð og kát en eitthvað hafi breyst í febrúar. Cusack gekk í raðir Sheffield United frá Leicester 2019. Auk þess að spila með liðinu vann hún að markaðsmálum fyrir félagið.
Enski boltinn Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Íslenski boltinn Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Fleiri fréttir Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Sjá meira