Fótbolti

Leik­maður FCK kallaði Fernandes grenjuskjóðu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Bruno Fernandes á tali við dómara leiks FC Kaupmannahafnar og Manchester United, Donatas Rumsas.
Bruno Fernandes á tali við dómara leiks FC Kaupmannahafnar og Manchester United, Donatas Rumsas. getty/Maja Hitij

Mohamed Elyounoussi, leikmaður FC Kaupmannahafnar, gagnrýndi Bruno Fernandes, fyrirliða Manchester United, eftir leik liðanna í Meistaradeild Evrópu í gær og sagði að Portúgalinn væri sívælandi.

Elyounoussi og Fernandes skoruðu báðir í leiknum á Parken í gær sem FCK vann, 4-3. Með sigrinum komust dönsku meistararnir upp í 2. sæti A-riðils. Rauðu djöflarnir eru aftur á móti í því fjórða og neðsta.

Elyounoussi og Fernandes áttu í einhverjum orðaskiptum í leikslok. Norðmaðurinn var spurður út í það í viðtölum eftir leikinn.

„Ég held að allir sem hafi séð United og hann viti að hann er leikmaður sem er alltaf að kvarta og kveina í dómurunum,“ sagði Elyounoussi.

„Ég reyndi að koma honum frá dómaranum. Ég sagði, þessu er lokið. Það var ekkert meira í þessu. Ég er ekki hrifinn af leikmönnum sem reyna að hafa áhrif á dómarann.“

Dómgæslan var vissulega mikið til umræðu eftir leikinn. Tvær vítaspyrnur voru dæmdar í leiknum, Marcus Rashford rekinn af velli og fyrsta mark FCK þótti umdeilt.

Fernandes gat ekki leynt vonbrigðum sínum í viðtali við Runólf Trausta Þórhallsson, blaðamann Vísis og Stöðvar 2 Sports, eftir leikinn á Parken í gær.

„Vonbrigði, að sjálfsögðu, okkur fannst við leggja hart að okkur allan leikinn. Spiluðum á tíu mönnum eftir að Marcus [Rashford] var rekinn af velli þannig að þetta var erfitt fyrir okkur en við gerðum allt sem við gátum til að sækja sigurinn, svo reyndist það bara ómögulegt,“ sagði Fernandes meðal annars.

Næsti leikur United er gegn Luton Town á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn. United er í 8. sæti deildarinnar með átján stig eftir ellefu leiki.


Tengdar fréttir

Orri eftir sigur á Man Utd: Alveg klikkað sem maður var að upp­lifa

Orri Steinn Óskarsson og félagar í danska liðinu FC Kaupmannahöfn unnu hádramatískan 4-3 endurkomusigur á Manchester United í Meistaradeildinni í gærkvöldi. Orri spilaði síðustu tuttugu mínútur leiksins eða einmitt mínúturnar þegar FCK sótti sigurinn.

Skýrsla frá Parken: Man United er brotið á líkama og sál

FC Kaupmannahöfn gerði sér lítið fyrir og lagði Manchester United í Meistaradeild Evrópu í gærkvöld, lokatölur 4-3 í hreint út sagt ótrúlegum leik. Blaðamaður Vísis var á leiknum og upplifði þær ótrúlegu tilfinningasveiflur sem fylgdu leik gærkvöldsins.

Ótrúleg endurkoma í hádramatískum leik

FC Kaupmannahöfn vann 4-3 sigur á Manchester United í hádramatískum leik þar sem rautt spjald leit dagsins ljós. United komst tapaði niður tveggja marka forystu eftir að hafa lent manni undir, komst aftur yfir en heimamenn skoruðu tvívegis undir lokin og sóttu sigurinn.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×