Fótbolti

Ó­víst hvort Haaland verði með er City getur tryggt sér sæti í út­sláttarkeppninni

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Óvíst er hvort Erling Braut Haaland geti verið með þegar Manchester City tekur á móti Young Boys í Meistaradeild Evrópu annað kvöld.
Óvíst er hvort Erling Braut Haaland geti verið með þegar Manchester City tekur á móti Young Boys í Meistaradeild Evrópu annað kvöld. Matthew Ashton - AMA/Getty Images

Óvíst er hvort norska markamaskínan Erling Braut Haaland geti verið með er Evrópumeistarar Manchester City taka á móti Young Boys í G-riðli Meistaradeildar Evrópu á morgun. Með sigri tryggir liðið sér sæti í 16-liða úrslitum keppninnar.

Norski framherjinn fór meiddur af velli í hálfleik er Manchester City mætti Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í gær. Englands- og Evrópumeistararnir lentu þó ekki í neinum vandræðum án síns helsta markaskorara og unnu öruggan 6-1 sigur.

Haaland snéri sig á ökkla í fyrri hálfleik gegn Bournemouth og þurfti því að fara af velli, en Pep Guardiola, þjálfari City, segist ekki vita hvort framherjinn verði klár í slaginn á morgun.

„Við munum ræða við læknateymið, en ég veit það ekki,“ sagði Guardiola, aðspurður að því hvort Haaland yrði með á morgun.

„Ég mun hlusta á læknana. Ef þeir segja að hann sé klár og laus við verki þá mun ég íhuga það að láta hann spila. Hann sagði mér dag að honum liði mun betur en strax eftir leik,“ bætti Guardiola við.

Haaland hefur skorað 13 mörk í öllum keppnum fyrir Manchester City á tímabilinu og tók þátt í hluta af opinni æfingu liðsins í dag.

Leikur Manchester City og Young Boys hefst klukkan 20:00 annað kvöld og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 3.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×