Fótbolti

Rifta samningi við El Ghazi vegna stuðningsyfirlýsingar við Palestínu

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
FSV Mainz 05 hefur ákveðið að rifta samningi Anwar El Ghazi við félagið.
FSV Mainz 05 hefur ákveðið að rifta samningi Anwar El Ghazi við félagið. Alex Grimm/Getty Images

Þýska úrvalsdeildarfélagið FSV Mainz 05 hefur ákveðið að rifta samningi sínum við hollenska knattspyrnumanninn Anwar El Ghazi.

Leikmaðurinn birti á dögunum færslu á samfélagsmiðlum sínum þar sem hann lýsti yfir stuðningi við Palestínu í átökunum á Gasasvæðinu, en El Ghazi hefur eytt færslunni.

Hinn 28 ára gamli El Ghazi var upphaflega settur í bann af félaginu þann 17. október síðastliðinn, en banninu var aflétt síðastliðinn mánudag og leikmaðurinn fékk aðvörun frá Mainz. Félagið greindi hins vegar frá því í dag, föstudag, að samningi leikmannsins hafi verið rift.

„FSV Mainz 05 hefur ákveðið að rifta samningi Anwar El Ghazi við félagið og tekur sú ákvörðun gildi þegar í stað. Félagið tekur þessa ákvörðun vegna yfirlýsinga leikmannsins á samfélagsmiðlum,“ segir í tilkynningu Mainz.

Eins og áður segir hafði félagið fyrr í þessari viku ákveðið að hleypa El Ghazi aftur inn í liðið eftir að hafa sett hann til hliðar í kjölfar yfirlýsinga hans á samfélagsmiðlum.

„Vegna loforða hans um að virða gildi félagsins og þeirrar eftirsjár sem hann hefur sýnt, sem og að ætla sér að nýta þessi mistök sín til að læra, mun Anwar El Ghazi bráðlega snúa aftur til æfinga og keppni með FSV Mainz 05,“ sagði félagið síðastliðinn mánudag. Þá hafði félagið einnig sagt að leikmaðurinn hafi „tekið afstöðu til átakanna í Mið-Austurlöndunum sem félaginu þykir ekki við hæfi.“

Sjálfur segist El Ghazi, sem er fyrrverandi leikmaður Aston Villa og Everton, ekki sjá eftir ummælum sínum um átökin á samfélagsmiðlum sínum.

„Stattu með því sem er rétt, jafnvel þó það þýði að þú standir einn,“ ritaði El Ghazi á samfélagsmiðla sína í dag.

„Það að ég tapi lífsviðurværi mínu er ekkert ef við berum það saman við helvítið sem nú rignir yfir saklaust og viðkvæmt fólk á Gasasvæðinu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×