Harry Kane með þrennu í sigri á Dortmund

Harry Kane fagnar þriðja marki sínu í kvöld
Harry Kane fagnar þriðja marki sínu í kvöld Vísir/Getty

Harry Kane skoraði þrennu í 4-0 sigri Bayern Munchen á Dortmund í kvöld.

Bayern Munchen þurfti á góðri frammistöðu að halda eftir slæm úrslit liðsins í miðri viku og það varð raunin.

Bayern byrjaði leikinn af miklum krafti og náði forystunni strax á 4. mínútu þegar Upamecano skoraði.

Harry Kane var síðan á ferðinni aðeins þremur mínútum síðar og tvöfaldaði forystu Bayern og var staðan 0-2 í hálfleik.

Bayern hélt uppteknum hætti í seinni hálfleiknum og skoraði þriðja markið og var það auðvitað Harry Kane sem skoraði það eftir undirbúning frá Kingsley Coman.

Fjórða mark Bayern og þriðja mark Harry Kane kom síðan í uppbótartíma þegar og reyndist það síðasta mark leiksins og Harry Kane kominn með fimmtán mörk deildinni.

Dortmund sá aldrei til sólar í leiknum og því reyndist þetta þægilegur sigur fyrir Bayern en eftir leikinn er liðið með 26 stig í öðru sætinu, tveimur á eftir Bayer Leverkusen.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira