Enski boltinn

Öruggur sigur Liverpool í síðasta æfingaleiknum

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Salah setti eitt.
Salah setti eitt. vísir/Getty

Liverpool vann 3-1 sigur á þýska úrvalsdeildarliðinu Darmstadt í síðasta æfingaleik sínum áður en enska úrvalsdeildin hefst um næstu helgi.

Jurgen Klopp tefldi fram sterku og sókndjörfu byrjunarliði og gerði svo sexfalda breytingu eftir klukkutíma leik en þá var staðan orðin 3-1 fyrir Liverpool.

Mohamed Salah og Diogo Jota komu Liverpool í 2-0 á fyrstu átta mínútum leiksins áður en Mathias Honsak minnkaði muninn fyrir Þjóðverjana á 10.mínútu. 

Luis Diaz skoraði þriðja mark Liverpool á 59.mínútu en fleiri urðu mörkin í leiknum ekki.

Liverpool hefur leik í ensku úrvalsdeildinni næstkomandi sunnudag þegar liðið heimsækir Chelsea.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×