Innlent

Viður­kennir mis­tök en furðar sig á felu­leik biskups

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Drífa Hjartardóttir forseti kirkjuþings vonar að umdeildur ráðningarsamningur biskups hafi ekki neikvæð áhrif á afstöðu þjóðarinnar til kirkjunnar.
Drífa Hjartardóttir forseti kirkjuþings vonar að umdeildur ráðningarsamningur biskups hafi ekki neikvæð áhrif á afstöðu þjóðarinnar til kirkjunnar. Vísir/Arnar

Forseti kirkjuþings segist hafa gert mistök þegar hann gerði samkomulag við biskup um að starfstími hans yrði framlengdur um eitt ár. Biskup hefði átt að láta vita af því að á sama tíma væri verið að gera við hann ráðningarsamning til meira en tveggja ára hjá Biskupsstofu.

Starfsmannamál þjóðkirkjunnar hafa verið í mikilli umræðu eftir að Drífa Hjartardóttir, forseti kirkjuþings, vakti athygli á því í vikunni að Ragnhildur Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri biskupsstofu hafi gert ráðningarsamning við Agnesi M. Sigurðardóttur, biskup Íslands til 31. október 2024. Kjörtímabili Agnesar lauk síðastliðið sumar.

Biskupsritari sagði í yfirlýsingu enga réttaróvissu um stöðu biskups og að hún hafi fullt umboð til að sinna þeim verkefnum sem henni eru falin þar til nýr biskup sé kjörinn.

Á sama tíma og gerður var ráðningarsamningur við Agnesi á biskupsstofu gerði Drífa, forseti Kirkjuþings, heiðurssamkomulag við Agnesi um áframhaldandi störf hennar til eins árs. Þá hafði nýkjörið kirkjuþing enn ekki komið saman, nefndir höfðu ekki verið skiptaðar og Drífa því ein að störfum.

„Ég hef alltaf gert mér grein fyrir því að það væri alveg vafi um að þetta væri rétt en við gerðum þetta samt,“ segir Drífa. 

„Ég var náttúrulega ekki með kirkjuþing á bak við mig en þetta var það sem við töldum rétt á þessu stigi málsins.“

Skrítið að ekki hafi verið látið vita af ráðningarsamningi

Hún hafi ekki vitað af ráðningarsamningnum sem gerður var á biskupsstofu á sama tíma og hafi aðeins haft embætti biskups í huga þegar hún gerði samkomulagið við Agnesi. 

„Þá finnst mér mjög einkennilegt að ég hafi ekki verið látin vita að það væri verið að gera ráðningarsamning við hana. Það er það sem mér finnst skrítið,“ segir Drífa.

Hefði Agnes ekki átt að segja þér frá því?

„Auðvitað hefði hún átt að gera það. Þá hefði ég kannski ekki þurft að gera þetta samkomulag við hana ef ég hefði vitað að þetta hefði verið í farvatninu.“

Hefði átt að blása til biskupskjörs síðasta sumar

Búið er að boða til biskupskosninga næsta vor en boða hefði átt til kosninga síðastliðið sumar. 

„Eftir á að hyggja hefði það verið réttast að gera það en þetta er í höndum kjörstjórnar hvenær er kosið. Nú verðum við bara að sjá hvað úrskurðarnefndin gerir. Ég er að fara að funda á mánudag með forsætisnefnd og kjörstjórn og við munum ræða þessi mál,“ segir Drífa. 

Kæmi til greina að flýta kjöri nýs biskups?

„Ég vil ekkert segja um það á þessu stigi.“

Hún voni að málið muni ekki hafa neikvæð áhrif á afstöðu landsmanna til þjóðkirkjunnar.

„Ég vona bara að þetta verði ekki til þess að það verði margar úrsagnir úr kirkjunni. Ég er nýkomin af Skálholtshátíð þar sem kom saman fjöldi fólks. Fólkið í landinu er grunneining í kirkjunni og það skiptir miklu máli að því sé sinnt. Fólkið í landinu sem sækir kirkju og er trúað vill ekki svona rugl og það er mjög leiðinlegt að þetta skuli vera svona.“


Tengdar fréttir

Enginn vafi á því að ráðning biskups eigi sér stoð í lögum

Lögmaður biskups Íslands segir alrangt að Agnes M. Sigurðardóttir hafi ekki umboð til að sinna embættisverkum sínum. Fyrrverandi hæstaréttardómari fullyrti í gær að ákvörðun um nýjan ráðningarsamning ætti sér ekki stoð í lögum

Ragn­hildur sú eina sem gat gert ráðningar­samning við Agnesi

Eins og stjórnsýslu þjóðkirkjunnar er háttað gat enginn annar en framkvæmdastjóri biskupsstofu gert ráðningarsamning við biskup Íslands. Biskup er starfsmaður þjóðkirkjunnar en heyrir hvorki undir kirkjuþing né rekstrarstofu þjóðkirkjunnar, sem heyrir undir kirkjuþing.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×