Innlent

Sveitarstjórinn hvetur aðila til að semja um hótelveginn

Kristján Már Unnarsson skrifar
Sveitarstjóri Skaftárhrepps, Einar Kristján Jónsson. Systrafoss í baksýn en hreppsskrifstofan er á Kirkjubæjarklaustri.
Sveitarstjóri Skaftárhrepps, Einar Kristján Jónsson. Systrafoss í baksýn en hreppsskrifstofan er á Kirkjubæjarklaustri. Einar Árnason

Skaftárhreppur styður hóteluppbyggingu á jörðinni Orustustöðum og hefur skipulagt nýjan veg mun fjær þeim nágrönnum sem verða fyrir mestu ónæði. Sveitarstjórinn kveðst vænta þess að deiluaðilar leysi málið sjálfir með samningum.

Á Brunasandi austan Kirkjubæjarklausturs, með útsýni til Lómagnúps og Öræfajökuls, undirbýr Hreiðar Hermannsson tvöhundruð herbergja hótel og er þegar búinn að taka hótelíbúðir og starfsmannahús í notkun. Deila við nágranna veldur því að ekki hefur fengist leyfi fyrir varanlegri vegtengingu en áfram var fjallað um málið í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Gert er ráð fyrir um tvöhundruð herbergjum á hótelinu.Stracta Hotels

„Ég kaupi jörðina 2012, sko, og síðan er þetta búið að ganga í þessu, að fá skipulagið samþykkt og allt svoleiðis. Og öll skilyrði eru fyrir hendi. Það stórvantar hérna stórhótel,“ segir Hreiðar.

Sveitarstjórinn Einar Kristján Jónsson segir Skaftárhrepp hafa gert allt sem í hans valdi stendur til að tryggja að af rekstrinum geti orðið.

Bæði heitar laugar og ísböð verða við hótelið, þar sem lögð verður áhersla á hverskyns afþreyingu.Stracta Hotels

„Það er samþykkt deiliskipulag af þessum framkvæmdum og það er ekkert sem stoppar hjá sveitarfélaginu í því,“ segir sveitarstjórinn.

Hreiðar lítur svo á að sveitarfélaginu beri að tryggja bráðabirgðaveg.

Hreiðar Hermannsson, eigandi Orustustaða og Stracta-hótela.Einar Árnason

„Þau eiga að laga veginn og byggja hann upp - það stendur í gögnunum – þannig að hann sé fær og þoli alla þungaumferð þar til verður byggður upp nýr vegur fimmhundruð metrum sunnar af hálfu Vegagerðarinnar,“ segir Hreiðar.

„Það er ekki sveitarfélagið. Það er ekki hlutverk þess að leggja veg,“ segir Einar Kristján.

Nokkrar leiðir voru skoðaðar til að tengja Orustustaði við hringveginn en jörðin var búin að vera í eyði í sjötíu ár. Punktalínan við Hraunból sýnir slóðann sem átökin hafa verið um.Grafík/Hjalti Freyr Ragnarsson

Umdeildur vegslóði um land Hraunbóls er núna notaður, gegn vilja eigenda Hraunbóls, til að komast til Orustustaða. Mögulegar vegtengingar til austurs mættu einnig andstöðu landeigenda þar og var niðurstaða sveitarfélagsins sú að framtíðarvegtenging yrði um land Hraunbóls en þó mun fjær húsum á jörðinni. 

Hér má sjá hvernig skipulag sveitarfélagsins gerir ráð fyrir að vegurinn að hótelinu verði lagður í sveig suður fyrir Hraunból.Grafík/Hjalti Freyr Ragnarsson

En gætu eigendur Hraunbóls sætt sig við þetta nýja vegstæði?

„Jaa.. - það er betri sátt. En við eigum eftir að íhuga það hvernig það endar þegar verður farið fram á það. Því hann hefur aldrei rætt það við landeigendur hvort að hann megi hefja framkvæmdir á deiliskipulagða veginum.

En það er það sem Vegagerðin hefur beðið um, að hann hafi landeigendur á sínu bandi. En það hefur hann aldrei haft,“ segir Þuríður Helga Benediktsdóttir, eigandi Hraunbóls.

Þuríður Benediktsdóttir er eigandi Hraunbóls.Sigurjón Ólason

Sveitarstjórinn hvetur aðila til að nálgast málið með hagsmuni allra í huga og fara samningaleið.

„Ég reikna fastlega með því að það sé hægt að semja um þetta eins og hvað annað. En menn verða náttúrlega að byrja á því að setjast niður og semja um hlutina og láta á það reyna hvort það gangi eða ekki.

Ég vænti þess, ef menn setjast bara yfir þetta og skoða þetta með opnum huga, þá væri hægt að ná samkomulagi með einhverjum hætti,“ segir Einar Kristján Jónsson, sveitarstjóri Skaftárhrepps.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:

Hér má sjá myndband Stracta af fyrirhuguðu hóteli:


Tengdar fréttir

Stracta fær hótellóð í Skaftárhreppi

Skipulags- og byggingarnefnd Skaftárhrepps hefur samþykkt að gerð verði breyting á aðalskipulagi svo Stracta hótelkeðjan geti reist hótel að Orrustustöðum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×