Fótbolti

Ingibjörg Sigurðardóttir aftur á skotskónum með Vålerenga

Siggeir Ævarsson skrifar
Ingibjörg gefur aldrei þumlung eftir í vörninni
Ingibjörg gefur aldrei þumlung eftir í vörninni Vísir/EPA

Varnarjaxlinn Ingibjörg Sigurðardóttir var aftur á skotskónum í dag með Vålerenga í norsku úrvalsdeildinni, en þetta var þriðja mark Ingibjargar á tímabilinu. Vålerenga unnu öruggan 4-1 sigur á botnliði Arna-Bjørnar og sitja taplausar í toppsætinu eftir 16 leiki.

Tímabilið hefur verið frábært hjá Vålerange hingað til, en liðið hefur unnið tólf af 16 leikjum sínum og gert fjögur jafntefli. Þær sitja því í toppsætinu með 40 stig en leikin er þreföld umferð í Toppserien svo að það er nóg eftir af deildinni.

Selma Sól Magnúsdóttir og félagar í Rosenborg eru svo í 2. sæti með 32 stig eftir 15 leiki, en þær töpuðu nokkuð óvænt í dag 2-0 gegn Lyn sem eru í bullandi fallbaráttu. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×