„Get ekki lifað eðlilegu lífi lengur“ Sindri Sverrisson skrifar 23. maí 2023 08:31 Erling Haaland með Englandsmeistarabikarinn sem hann fékk í hendurnar á sunnudaginn. Getty/Michael Regan Norska knattspyrnustjarnan Erling Haaland segir að úr því sem komið er geti hann ekki lifað eðlilegu lífi. Hann hefur vakið athygli um allan heim með framgöngu sinni hjá Manchester City í vetur.
Haaland hefur skorað 53 mörk fyrir City í öllum keppnum í vetur og sett markamet á sinni fyrstu leiktíð í ensku úrvalsdeildinni. Eftir að hafa orðið Englandsmeistari í fyrstu tilraun um helgina ræddi þessi 22 ára leikmaður, frá norska bænum Bryne, meðal annars um hvernig það væri að vera kominn í hóp stærstu fótboltastjarna heims. „Ég býst við að það séu nokkuð fleiri sem vita núna hver ég er, svo það er orðið enn erfiðara að gera venjulegustu hluti. En svona er lífið mitt núna og ég get ekki kvartað yfir því,“ sagði Haaland í viðtali við Viaplay í gær. Í viðtalinu kvaðst hann ekki hafa breytt miklu sjálfur í sínu lífi, þó að hann fengi vissulega meiri umönnun en áður, en sagði þó engan vafa á því að lífið hefði breyst. „Lífið hefur breyst. Ég get ekki lifað eðlilegu lífi lengur. Svoleiðis er það bara,“ sagði Haaland. „Ég reyni að vera ég sjálfur eins og ég get, og hafa gott og heiðarlegt fólk í kringum mig. Ég tel að það sé lykilatriði. Það er akkúrat það sem ég hef. Þetta angrar mig ekki svo mikið,“ sagði Haaland sem enn getur landað þrennunni með City því liðið spilar úrslitaleik enska bikarsins 3. júní og úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu 10. júní.
Enski boltinn Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Arbeloa í brasi Enski boltinn Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira