Ten Hag: Þetta snýst ekki um Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. maí 2023 11:01 Marcus Rashford hjá Manchester United reynir að komast framhjá Trent Alexander Arnold hjá Liverpool. Getty/Ash Donelon/ Manchester United tapaði tveimur leikjum á aðeins fjórum dögum og hefur með því opnað dyrnar á ný fyrir Liverpool í baráttunni um Meistaradeildarsæti.
Nú munar bara einu stigi á liðunum en United á þó enn leik inni á Liverpool. Áhyggjuefnið er hins vegar að United hefur aðeins unnið einn af síðustu fjórum deildarleikjum en Liverpool hefur aftur á móti unnið sex deildarleiki í röð. Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, var spurður út í mögulega pressu frá erkifjendunum úr Bítlaborginni vegna þess að Liverpool hefur étið upp forskot United á síðustu vikum. „Þetta snýst ekki um Liverpool. Þetta snýst bara um okkur. Ef þú horfir á stöðuna í deildinni þá sérðu að við erum með allt í okkar höndum,“ sagði Erik ten Hag. Manchester United á eftir heimaleik á móti Úlfunum, útileik á móti Bournemouth, heimaleik á móti Chelsea og heimaleik á móti Fulham. Þrír af fjórum síðustu leikjum liðsins fara því fram á Old Trafford sem ætti að boða mjög gott. Liverpool á hins vegar eftir að spila þrjá leiki og þeir eru á móti Leicester á útivelli, á móti Aston Villa á heimavelli og á móti Southampton á útivelli. View this post on Instagram A post shared by Sky Sports (@skysports)
Enski boltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Fleiri fréttir Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Sjá meira