Segir að Kane ætti að skammast sín fyrir leikaraskapinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. apríl 2023 07:31 Harry Kane fellur til jarðar eftir að Abdoulaye Doucoure stjakaði við honum. getty/Alex Livesey Harry Kane ætti að skammast sín fyrir að fiska Abdoulaye Doucoure út af í leik Everton og Tottenham í gær. Þetta segir Jamie Carragher.
Tvö mörk voru skoruð og tvö rauð spjöld fóru á loft þegar Everton og Spurs skildu jöfn, 1-1, í ensku úrvalsdeildinni í gær. Kane kom Spurs yfir með marki úr vítaspyrnu á 68. mínútu. Tíu mínútum áður var Doucoure rekinn af velli fyrir að ýta við Kane. Carragher, sem fjallaði um leikinn á Sky Sports, sakaði Kane um leikaraskap í því atviki. „Doucoure gerði mistök og ég er viss um að Sean Dyche [knattspyrnustjóri Everton] lætur hann vita af því,“ sagði Carragher. „Ef ég hefði gert þetta á vellinum hefði ég skammast mín og ef ég hefði séð son minn gera þetta, það hefði kannski hjálpað liðinu hans að vinna ef mótherjinn er manni færri en þegar hann kæmi aftur í bílinn eftir leik hefði ég sagt honum að gera þetta aldrei aftur á fótboltavellinum.“ Gary Neville varði hins vegar Kane og sagði viðbrögð hans eðlileg og að þau hefðu orðið til þess að Doucoure var rekinn af velli. Annars hefði dómari leiksins sennilega látið gult spjald nægja. Doucoure var ekki eini leikmaðurinn sem fékk rautt í leiknum í gær. Tottenham-maðurinn Lucas Moura var einnig rekinn af velli á 88. mínútu. Tveimur mínútum síðar jafnaði Michael Keane fyrir Everton og þar við sat.
Enski boltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Fleiri fréttir Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Sjá meira