Tvær víta­spyrnur Le­verku­sen komu í veg fyrir að Bayern kæmist aftur á toppinn

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Bayer Leverkusen vann 2-1 sigur á Þýskalandsmeisturum Bayern í dag.
Bayer Leverkusen vann 2-1 sigur á Þýskalandsmeisturum Bayern í dag. Federico Gambarini/Getty Images

Eftir stórsigur Borussia Dortmund í gær, laugardag, þá var ljóst að Bayern þurfti á sigri að halda gegn Leverkusen til að komast aftur á topp deildarinnar. Þegar Joshua Kimmich skoraði um miðbik fyrri hálfleiks virtist sem allt væri að fara ganga upp.

Gestirnir frá Bæjaralandi voru 1-0 yfir í hálfleik en Julian Nagelsmann, þjálfari liðsins, ákvað að gera þrjár skiptingar í hálfleik og virtist það riðla leik gestanna. Þegar tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik fékk heimaliðið vítaspyrnu.

Exequiel Palacios skoraði af öryggi úr spyrnunni og staðan orðin 1-1. Þegar tæpar tuttugu mínútur lifðu leiks fengu heimamenn aðra vítaspyrnu. Aftur var það myndbandsdómari leiksins sem steig inn í.

Aftur fór Palacios á punktinn og aftur skoraði hann þó Yann Sommer, markvörður Bayern, hafi náð að slæma hendi í knöttinn þá fór hann samt sem áður í netið og Leverkusen komið 2-1 yfir. Reyndust það lokatölur og annað tap Bayern í síðustu 5 deildarleikjum staðreynd.

Staðan í deildinni er þannig að Dortmund er á toppnum með 53 stig eftir 25 leiki. Bayern er í 2. sæti með 52 stig en Leverkusen er í 8. sæti með 37 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira