Fótbolti

Bæjarar skoruðu fimm eftir að hafa lent undir

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Pavard hlóð í tvennu.
Pavard hlóð í tvennu. vísir/Getty

Bayern Munchen styrkti stöðu sína á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar í dag með sigri á Augsburg í átta marka leik.

Augsburg náði forystunni strax á annarri mínútu leiksins með marki Mergim Berisha en Bæjarar voru fljótir að jafna metin því Joao Cancelo skoraði á fimmtándu mínútu.

Annar bakvörður var næstur á markalistann því Benjamin Pavard skoraði næstu tvö mörk Bæjara áður en Leroy Sane kom Bayern í 4-1 skömmu fyrir leikhlé.

Berisha skoraði sitt annað mark í leiknum eftir klukkutíma leik en Alphonso Davies svaraði fyrir Bæjara og breytti stöðunni í 5-2. Gestirnir náðu að laga stöðuna í uppbótartíma en nokkuð öruggur 5-3 sigur Bayern staðreynd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×