Allt jafnt fyrir stórleikinn á Old Trafford

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Marcus Rashford skorar fyrra mark United í kvöld.
Marcus Rashford skorar fyrra mark United í kvöld. Robbie Jay Barratt - AMA/Getty Images

Barcelona og Manchester United áttust við í fyrri viðureign liðanna í Evrópudeildinni í fótbolta í kvöld. Lokatölur urðu 2-2 og því verður allt undir þegar liðin mætast á Old Trafford í seinni leiknum að viku liðinni.

Þrátt fyrir nokkur hálffæri í fyrri hálfleik tókst hvorugu liðinu að finna netmöskvana og því var enn markalaust þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búningsherbergja.

Markaþurrðin varði þó ekki lengi í síðari hálfleik því Marcos Alonso kom heimamönnum í Barcelona í forystu á 50. mínútu eftir stoðsendingu frá Raphinha áður en Marcus Rashford jafnaði metin fyrir United aðeins þremur mínútum síðar.

Gestirnir frá Manchester voru svo búnir að taka forystuna á 59. mínútu leiksins þegar Jules Kounde verð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net.

Kounde var þó einnig á ferðinni á hinum enda vallarins þegar hann lagði upp jöfnunarmark Börsunga fyrir Raphinha rétt tæpum stundarfjórðungi fyrir leikslok og þar við sat.

Niðurstaðan því 2-2 jafntefli í stórskemmtilegum leik. Eins og áður segir mætast liðin á ný á Old Trafford að viku liðinni og þá kemur í ljós hvort liðið tryggir sér sæti í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira