Enski boltinn

Manchester United sagt ætla að spyrja leikmenn um framtíð Greenwood

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mason Greenwood sést hér mæta fyrir dómara á síðasta ári en hætt var við að sækja hann til saka.
Mason Greenwood sést hér mæta fyrir dómara á síðasta ári en hætt var við að sækja hann til saka. Getty/Paul Currie

Enski knattspyrnumaðurinn Mason Greenwood er laus allra mála eftir að málið gegn honum var fellt niður en nú þarf Manchester United að ákveða hvað félagið ætlar að gera með einn efnilegasta leikmann félagsins.

Greenwood þótti einn mest spennandi leikmaður í Englandi og var ungur að aldri búinn að vinna sér sæti í enska landsliðinu. Allt sprakk hins vegar framan í hann þegar myndband með honum fara mjög illa með kærustu sína fór á flug á netmiðlum.

ESPN hefur heimildir fyrir því að forráðamenn United ætli að spyrja leikmenn álits um hvort þeir eigi að taka Greenwood aftur inn og þá erum við að tala bæði um leikmenn karlaliðsins og leikmenn kvennaliðsins.

United hefur nú hafið innanhúss rannsókn eftir að fallið var frá kærunni á hendur Greenwood. Hann átti að koma fyrir dómara í nóvember fyrir tilraun til nauðgunar, líkamsárás og þvingunartilburði.

Hinn 21 árs gamli Greenwood hefur ekki spilað með Manchester United síðan í janúar 2022. Eftir að málið kom upp var honum strax bannað að mæta á æfingar hjá félaginu og United klippti alveg á öll tengsl sín við leikmanninn.

Greenwood er engu að síður með samning til ársins 2025 og á þá möguleika á að bæta einu ári við. Hann náði að spila 129 leiki fyrir United áður en málið kom upp.

Rannsókn Manchester United er víðtæk og ítarleg og hluti af vinnunni verður að ræða við leiðtoga í bæði karla- og kvennaliði félagsins.

Það er ekki búist við neinni niðurstöðu fyrr en í sumar því Erik ten Hag vill alls ekki að mál eins og þetta trufli liðið á mikilvægum lokaspretti sínum á leiktíðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×