Enski boltinn

Rashford umbreytti íbúðinni sinni á Valentínusardaginn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Marcus Rashford sést hér með Luciu sinni í gær.
Marcus Rashford sést hér með Luciu sinni í gær. Instagram/@marcusrashford

Manchester United leikmaðurinn Marcus Rashford var með metnaðinn í botni á Valentínusardaginn í ár.

Rashford sýndi fylgjendum sínum myndband af íbúðinni sinni eins og hann hafði sett hana upp fyrir rómantískt kvöld með kærustunni.

Þar var allt þakið í rósum, hjartablöðrum og kertum. Rómantíkin var upp um alla veggi og auðvitað rólegt og rómantískt í græjunum líka.

Lucia, kærasta hans, virtist líka vera mjög sátt með sinn mann.

Það gengur allt upp hjá United-manninum síðan að hann kom heim frá HM í Katar en hann hefur skorað þrettán mörk í öllum keppnum síðan í desember.

Hér fyrir neðan má sjá hvernig íbúð Rashford leit út á Valentínusardaginn í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×